6 September 2016 10:54

Ökumaður mældist á 64 km. hraða í gærkvöld,  í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, þar sem hámarkshraði er 30 km. á klukkustund. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í þrjá mánuði, auk þess að fá sekt upp á 45.000 krónur og þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá. Auk hans hafa sex ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum.