Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
 Innbrot og þjófnaðir  
 Ofbeldi  
 Fíkniefni og aðrir vímugjafar  
   Foreldrarölt  
   Talaðu við barnið þitt  
   Um kannabisefni  
   Upplýsingar og aðstoð  
   Vímuefnaneysla ungmenna  
   Fíkniefnafræðsla  
 Netið  
 Kynferðisbrot  
 Ýmis ákvæði laga um börn  
 Fræðsluefni  
 Greinar  
 Vefir um forvarnir  
 Ýmislegt  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Fíkniefnafræðsla   

Forvarnafélagið Hættu áður en þú byrjar er samstarfsverkefni Félagsþjónustunnar í Reykjavík, lögreglustjórans á höfuðborgarssvæðinu og Marita, forvarna- og hjálparstarfs. Auk þeirra hefur Forvarnasjóður og Pokasjóður styrkt verkefnið.

Forvarnafélagið Hættu áður en þú byrjar býður upp á fíkniefnafræðslu fyrir grunnskólanemendur og foreldra þeirra. Í boði eru:

Fræðslufundir fyrir nemendur í 9. bekk og foreldra þeirra

Þessi fræðsla kallast Hættu áður en þú byrjar. Nemendur fá fræðsluna á skólatíma en foreldrar að kvöldlagi. Í fræðslunni er sýnd mynd um veruleika íslensks fíkniefnaheims. Magnús Stefánsson fræðslufulltrúi og óvirkur fíkill ræðir við áheyrendur um fíknina og afleiðingar hennar, m.a. á sitt eigið líf. Lögreglumaður fjallar um afleiðingar fíkniefnaneyslunnar út frá sjónarmiði lögreglunnar. Fulltrúi félagsþjónustunnar ræðir um úrræði og hvert foreldrar geta leitað ti að fá aðstoð vegna barna sinna. Hver fræðslufundur tekur tvær klukkustundir.

Markmiðið með fræðslunni er að fá nemendur til að taka afstöðu gegn fíkniefnum og notkun þeirra og að þeir skilji hverjar afleiðingarnar geta orðið. Mikil áhersla er lögð á að börn og foreldrar fái sömu fræðsluna þó að nálgunin sé ólík á fundunum og er það gert í þeim tilgangi að skapa umræðugrundvöll um vímuefni og notkun þeirra inni á heimilunum, því foreldrar eru besta forvörnin.

Eftirfylgd

Þessir fræðslufundir eru hugsaðir fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra sem hafa áður fengið Hættu áður en þú byrjar fræðsluna. Þessir fundir eru haldnir utan skólatíma og eru nemendur og foreldrar þeirra saman á fundinum. Þeim er sýnd ný íslensk mynd þar sem rætt er við tvo óvirka vímuefnaneytendur, rætt er um þau tímamót sem unglingarnir standa frammi fyrir við lok grunnskóla, framhaldsskóladansleikjum gerð skil og umræður í hópum. Fundurinn tekur eina og hálfa klukkustund og markmið hans er að fylgja eftir þeirri fræðslu sem foreldrar og nemendur hafa þegar fengið á vegum félagsins. Áhersla er lögð á að allir beri ábyrgð á sjálfum sér og þeim ákvörðunum sem þeir taka í lífinu, rætt um mikilvægi þess að opna sig við einhvern og tala um tilfinningar sínar og vanlíðan og undirstrikað að mikilvægt sé að setja sér markmið í lífinu til að stefna að.

Fjöldi

Frá hausti 1998 hafa rúmlega 20.000 unglingar fengið 9. bekkjar fræðsluna en haldnir hafa verið 446 nemendafundir og 243 foreldrafundir. Þá er ótalin fjöldi foreldra, yngri nemenda, framhaldsskólanema og þeirra sem sótt hafa eftirfylgdarfundi.

Umsagnir

…fræðslan var geðveikt áhrifarík. Ég hef eiginlega ekki hugsað um margt annað síðan. Samt er ég ekki í dópi né þekki ég engan sem er í dópi sem betur fer…Þó ég sé ekkert á leiðinni í dóp þá er ég líklegast hrædd um það því þú sagðir að hver sem er gætir lent í þessu…

-nemandi í 9. bekk Hvassaleitisskóla 2003

Uppbygging fræðslunnar og hugmyndafræðin á bak við hana virkar. Þessi fræðsla vekur nemendur til umhugsunar og jafnhliða virkjar hún foreldra. Það er ekkert prógram í gangi sem er neitt í líkingu við þetta fyrir unglinga á elsta stigi grunnskóla.

-Jóhann námsráðgjafi í Engjaskóla 2003


Senda grein