|
|
|
|
Foreldrar athugið!
- Kennið barninu ykkar að treysta tilfinningum sínum og að það hafi rétt á því að segja nei ef það skynjar að eitthvað er rangt.
- Hlustið vel á barnið þegar þið finnið að það er óttaslegið.
- Börn eiga að vita að það má enginn snerta þau á þann hátt að þeim líði illa og ef einhver gerir það þá ættu þau að segja ykkur frá því strax.
- Kennið barninu að fara ekki upp í bíl til ókunnugra og setjið upp smá leikþátt þannig að barnið geti æft sig í réttum viðbrögðum. Æfingin skapar meistarann!
- Reynið að vera vel innstillt á breytingar á hegðun barnsins ykkar.
- Þið eigið að vita hvar barnið ykkar er á öllum tímum sólahringsins. Kynnist vinum barnsins og áttið ykkur á því hvernig þeir haga sínu daglega lífi.
- Verið vakandi yfir því ef einhver sýnir barninu óvenju mikinn áhuga.
- Ekki treysta hverjum sem er fyrir börnunum - vandið val á barnfóstrum.
Krakkar, munið:
- Að þið þurfið að vera ákveðin. Þið eigið rétt á því að segja nei við þá sem vilja reyna að fá ykkur eitthvert með sér, snerta ykkur eða láta ykkur líða illa og gera ykkur hrædd.
- Ef þið verðið viðskila við foreldra ykkar utan heimilisins og farið að leita að þeim, farið þá beint til starfsmanns eða annars sem þið teljið ykkur geta treyst, og segið að þið þurfið hjálp.
- Fáið leyfi hjá foreldrum eða forráðamönnum ykkar ef þið ætlið að fara eitthvað.
- Forðist ókunnugt fólk og ókunnugar bifreiðar ef þið haldið að verið sé að elta ykkur.
- Takið fólki með varúð sem spyr til vegar eða segir að foreldrar ykkar hafi sent þau til að sækja ykkur því þau komist ekki sjálf.
- Ef einhver reynir að fara eitthvert með ykkur gegn ykkar vilja verið þá fljót að hlaupa í burtu, öskrið eins hátt og þið getið og látið öllum illum látum. Þið megið það og þið eigið að gera það.
- Látið foreldra ykkar vita ef þið farið úr þeirra augsýn og úr þeirra umsjá, t.d. ef þið farið inn til vina ykkar. Ekki þiggja far með ókunnugum nema foreldrar ykkar hafi gefið leyfi og viti þá með hverjum þið farið.
- Það má enginn snerta líkama ykkar á viðkvæmum stöðum, til dæmis þar sem sundföt hylja hann og þið ættuð ekki að snerta þessa líkamsparta á öðrum. Líkami ykkar er sérstakur og einstakur.
|
Senda grein |
|
|
|