Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Fréttir   
29. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Trampólín og aðrir lausamunir
Leiðindaveðri er spáð á höfuðborgarsvæðinu og er fólk minnt á að festa lausamuni eða koma þeim í skjól. Þetta á ekki síst við um trampólín en þau eiga það til að fjúka þegar hvessir. Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu næsta sólarhringinn eru þessar:...
Meira
28. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Óhæfur ökumaður með barn í bílnum
Kona á fertugsaldri var stöðvuð við akstur í Reykjavík í gærmorgun. Hún var undir áhrifum fíkniefna. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Móðirin, sem hafði þegar...
Meira
28. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Árekstur á Reykjanesbraut
Karl á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut í Kópavogi í gær. Þar var fólksbíl ekið aftan á vinnuvél. Óttast var að ökumaðurinn hefði nefbrotnað en hann sagðist hafa verið annars hugar í aðdraganda slyssins og verið...
Meira
28. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Bruni í vesturbæ Reykjavíkur
Engan sakaði þegar eldur kviknaði í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur á fjórða tímanum í nótt. Slökkvistarf gekk greiðlega en nokkrar skemmdir urðu samt á íbúðinni. Tæknideild lögreglunnar var kölluð til og framkvæmdi hún eldsupptakarannsókn.
Meira
28. september 2011 | Ríkislögreglustjórinn
Fullyrðingu ríkisendurskoðanda um lögbrot hafnað
Vegna fullyrðingar ríkisendurskoðanda í fréttum Stöðvar 2 og Ríkissjónvarps í gærkvöldi um að ríkislögreglustjóri hafi brotið lög skal vakin athygli á eftirfarandi viðtali við hann sem birtist á mbl. is í gærkvöldi: Hafnar fullyrðingu um...
Meira
27. september 2011 | Ríkislögreglustjórinn
Frekari upplýsingar
Í framhaldi af fréttatilkynningu ríkislögreglustjóra fyrr í dag um ábendingu Ríkisendurskoðunar er rétt að geta um eftirfarandi: Markaður með lögregluvörur Íslenskur markaður er smár og þegar kemur að ýmsum sérhæfðum vörum í sérhæfðum...
Meira
27. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Umferðarslys - vitni óskast
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Miklubraut í Reykjavík, austan Skeiðarvogs, laust fyrir klukkan hálfátta í morgun, þriðjudaginn 27. september. Þar rákust saman ljósgrár Citroen Berlingo, sem er lítill...
Meira
27. september 2011 | Ríkislögreglustjórinn
Vegna ábendingar ríkisendurskoðunar
Vegna fréttaflutnings fjölmiðla í dag um ábendingu Ríkisendurskoðunar um innkaup löggæslustofnana á öryggisbúnaði fyrir lögreglu þykir rétt að vekja athygli á eftirfarandi: Ríkislögreglustjóri er að sjálfsögðu sammála Ríkisendurskoðun um að...
Meira
27. september 2011 | Akureyri - 24
Lögreglumenn í Eyjafirði segja sig úr óeirðaflokki
Í framhaldi af fjölmennum félagsfundi Lögreglufélags Eyjafjarðar þann 26. september 2011, hafa níu lögreglumenn í Eyjafirði, sem skipa óeirðaflokk lögreglunnar á svæðinu, allir sem einn, sagt sig frá störfum í óeirðaflokknum. Með þessu vilja þeir...
Meira
26. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Framkvæmdir á Vesturlandsvegi
Á þriðjudag og miðvikudag er fyrirhugað að vinna við fræsingar og malbikun á vegöxlum á Vesturlandsvegi, ef veður leyfir. Um er að ræða framkvæmdakafla frá Blikastaðavegi að Höfðabakkabrú. Fræsing og malbikun mun hefjast á milli kl 9 og 10 í...
Meira
26. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrot í bíla
Brotist var inn í á annan tug bíla á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Úr þeim var stolið m.a. GPS-tækjum, fartölvum, greiðslukortum, radarvörum og svokölluðum Ipod-um. Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það...
Meira
26. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Réttindalausir ökumenn
Um helgina stöðvaði lögreglan för sex ökumanna sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 19-34 ára og ein kona, 20 ára. Til viðbótar var 16 ára piltur staðinn að akstri fólksbíl en sá hefur aldrei öðlast ökuréttindi,...
Meira
26. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík um helgina. Þetta voru fjórar konur á aldrinum 18-39 ára og tveir karlar, 17 og 32 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.
Meira
23. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ofurhugi í ógöngum
Ungur drengur lenti í vandræðum þegar hann klifraði upp í tré á leiksvæði við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Ferðin upp gekk vel en þegar halda átti aftur niður á jörðina vandaðist málið. Stráksi sat því fastur í trénu og þurfti að kalla til...
Meira
23. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Líkamsárás - gæsluvarðhald til 30. september
Kona á sextugsaldri hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 30. september að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Konan var handtekin í íbúð í Kópavogi síðdegis í gær en grunur leikur á að hún...
Meira
23. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Bílaþjófar handteknir
Tveir ungir menn stálu bíl í Kópavogi í gærmorgun. Í framhaldinu fóru þeir á bensínstöð, stálu þar eldsneyti og héldu síðan upp í langferð sem lauk á Norðurlandi nokkrum klukkutímum síðar. Þar voru þeir handteknir og sendir aftur í bæinn en þeirra...
Meira
23. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Þetta voru fjórar konur á aldrinum 22-49 ára og einn karl, 21...
Meira
23. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Líkamsárás í Kópavogi
Kona á sextugsaldri var handtekin í íbúð í Kópavogi síðdegis í gær en grunur leikur á að hún hafi stungið karl á sjötugsaldri með hnífi. Hann var einnig í íbúðinni þegar lögreglan kom á vettvang en á manninum voru nokkur stungusár. Maðurinn var...
Meira
21. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Einn sviptur ökuréttindum á Sæbraut
Ölvaður ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í nótt en viðkomandi var jafnframt staðinn að hraðakstri á Sæbraut í Reykjavík. Um var að ræða 19 ára pilt en bíll hans mældist á 123 km hraða þar sem hámarkshraði er...
Meira
21. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Óhapp í eldhúsi
Eftir hádegi í gær var tilkynnt um reyk í fjölbýlishúsi í Reykjavík. Lögregla og slökkvilið fóru strax á vettvang en sem betur fer reyndist enginn eldur þegar á staðinn var komið. Í einni íbúðinni hafði hinsvegar ungur maður verið að hita sér pizzu...
Meira
21. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Þjófar á ferð
Unglingspiltur stal tölvu úr verslun í miðborginni síðdegis í gær. Sprettharður starfsmaður búðarinnar hljóp á eftir honum og náði að endurheimta tölvuna, sem reyndist óskemmd. Þess má geta að hinn fótfrái starfsmaður er kominn á miðjan aldur en er...
Meira
21. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í gær og nótt. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 19-31 árs. Í bíl eins þeirra fundust...
Meira
20. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hundur beit konu
Kona var bitin af hundi í Reykjavík í gærkvöld. Hún var á göngu í miðborginni þegar þetta gerðist en hundurinn, sem var tjóðraður við staur á einkalóð, beit hana í höndina svo á sá. Konan hugðist klappa hundinum með fyrrgreindum...
Meira
20. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Líkamsárás í miðborginni
Karl um sjötugt var stunginn með hnífi í húsi miðborginni síðdegis í gær. Árásarmaðurinn, sem er nokkru yngri, var handtekinn á staðnum og vísaði sá á hnífinn, sem var haldlagður. Sá sem var stunginn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en...
Meira
20. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Óhæfur ökumaður með barn í bílnum
Kona um þrítugt var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gær. Hún var undir áhrifum fíkniefna. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Móðirin var handtekin og...
Meira
20. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Sjö teknir fyrir ölvunarakstur
Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru sex karlar á aldrinum 18-51 árs og ein kona um...
Meira
20. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Sex óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 17-39...
Meira
19. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Húsleit í Langholtshverfi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Langholtshverfi í Reykjavík á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á kannabisplöntur, græðlinga og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Við leitina fannst einnig...
Meira
16. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ástand bifhjóla
Ástand bifhjóla virðist misgott ef marka má niðurstöður skyndiskoðunar sem lögreglan, í samvinnu við Umferðarstofu og skoðunarstöðvar, stóð fyrir í vikunni. Rúmlega helmingur hjólanna, sem var tekin til skoðunar, reyndist í lagi en hin ekki.
Meira
16. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í nótt. Þeir voru stöðvaðir í miðborginni og Árbæ. Um var að ræða konu á þrítugsaldri og 18 ára pilt en hann hafði þegar verið sviptur...
Meira
16. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisræktun í Hlíðunum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hlíðunum í Reykjavík síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 35 kannabisplöntur. Karl um fertugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann aðild...
Meira
16. september 2011 | Ríkislögreglustjórinn
Afbrotatíðindi ríkislögreglustjóra 2011
Í haust verður gefin út afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir árið 2010. Þar kemur m.a. fram að hegningarlagabrot voru 14.911 talsins, umferðarlagabrot 54.637 og sérrefsilagabrot 3.977. Skýrsluna má nálgast...
Meira
15. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Frágangur á farmi
Því miður vill það stundum brenna við að frágangur á farmi er óviðunandi. Dæmi um það sést á meðfylgjandi mynd sem var tekin á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Eins og sjá má var ekki skjólborð fremst á vagninum og því ekkert sem hindraði framskrið...
Meira
15. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hundur beit stúlku í Hafnarfirði
Stúlka var bitin af hundi í Hafnarfirði í gær. Hún var á reiðhjóli í Suðurbænum þegar þetta gerðist en hundurinn beit hana í fótinn svo á sá. Hundurinn fannst eftir leit lögreglu í nágrenninu og var fangaður. Eigandi hans var hinsvegar hvergi...
Meira
15. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Vinnuslys í Mosfellsbæ
Karl um sextugt missti framan af fingri í vinnuslysi í Mosfellsbæ í gærmorgun. Maðurinn var við vinnu sínu hjá fyrirtæki í bænum þegar slysið varð en hann klemmdist illa í plastsuðuvél með fyrrgreindum afleiðingum. ...
Meira
15. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Einn sviptur ökuréttindum á Korpúlfsstaðavegi
Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða seint í gærkvöld en viðkomandi var staðinn að hraðakstri á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík, á móts við Brúnastaði. Um var að ræða 17 ára pilt en bíll hans mældist á 108 km hraða þar sem...
Meira
14. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fékk tré í höfuðið
Karl á fimmtugsaldri var fluttur á slysadeild eftir að á hann féll tré í Reykjavík eftir hádegi í gær. Óhappið varð þegar verið var að saga niður nokkur tré í Vogahverfinu en maðurinn fékk tréð í höfuðið. Hann vaknaðist illilega en ekki er vitað...
Meira
14. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Líkamsárás í miðborginni
Karl á fertugsaldri var stunginn með hnífi í miðborginni um kvöldmatarleytið í gær. Árásarmaðurinn, sem er litlu eldri, var handtekinn nærri vettvangi en í fórum hans fannst hnífur, sem var haldlagður. Mennirnir voru báðir í annarlegu ástandi en sá...
Meira
14. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisræktun í austurborginni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í austurborginni í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 30 kannabisplöntur, auk græðlinga. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja...
Meira
13. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
Nokkrir tugir ökumanna voru teknir fyrir hraðakstur víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í allra grófustu brotunum var ekið á 75-80 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Ökufantarnir eru á ýmsum aldri og af báðum kynjum. Í þessum vafasama...
Meira
12. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Tekinn tvisvar fyrir fíkniefnaakstur
Karl á fertugsaldri var tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakstur á tæpum sólarhring í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fyrst var hann stöðvaður í austurborginni á föstudag og svo aftur í Kópavogi daginn eftir. Þá hafði maðurinn komist yfir...
Meira
12. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ellefu teknir fyrir ölvunarakstur
Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Níu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum...
Meira
12. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Níu óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru níu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, fimm á laugardag, einn á sunnudag og einn...
Meira
9. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Einn sviptur ökuréttindum á Hringbraut
Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða seint í gærkvöld en viðkomandi var staðinn að hraðakstri á Hringbraut í Reykjavík, á móts við Bjarkargötu. Um var að ræða 18 ára pilt en bíll hans mældist á 107 km hraða þar sem hámarkshraði er...
Meira
9. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Landaframleiðsla í Kópavogi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði landaframleiðslu í húsi í Kópavogi í morgun. Lagt var hald á um 800 lítra af gambra, nokkra tugi lítra af landa og búnað tengdan starfseminni. Einn maður var handtekinn og yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og...
Meira
9. september 2011 | Ríkislögreglustjórinn
Göngum í skólann 2011
Göngum í Skólann var sett formlega í á miðvikudagsmorgun í Síðuskóla á Akureyri. Við setninguna töluðu Ólafur B. Thoroddsen skólastjóri Síðuskóla, Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar sem...
Meira
8. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Þjófur handtekinn í Kópavogi
Skjávarpa var stolið í innbroti í Kópavogi síðdegis í gær. Grunur beindist fljótt að ákveðnum manni og var hann handtekinn annars staðar í bænum. Sá maldaði í móinn og var margsaga en eftir að skjávarpinn kom í leitirnar játaði hann sök í...
Meira
8. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Hundur beit stúlku
Unglingsstúlka var bitin af hundi í Reykjavík í gær. Hún var á göngu í Bústaðahverfinu þegar þetta gerðist en hundurinn beit hana í höndina svo á sá. Þrátt fyrir leit lögreglu fannst hvorki hundurinn né eigandi hans en sá síðarnefndi var á vettvangi...
Meira
8. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Sofnaði við stýrið
Betur fór en á horfðist þegar bíll valt á Suðurlandsvegi um miðjan dag í gær. Ökumanninn sakaði ekki, eftir því sem best er vitað, en undir stýri var kona á sextugsaldri en talið er að hún hafi sofnað við aksturinn. Óhappið minnir okkur á mikilvægi...
Meira
8. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Einn sviptur ökuréttindum í Hvassaleiti
Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í gærmorgun en viðkomandi var staðinn að hraðakstri í Hvassaleiti í Reykjavík. Um var að ræða 19 ára pilt en bíll hans mældist á 66 km hraða þar sem hámarkshraði er 30. Pilturinn hefur áður...
Meira
8. september 2011 | Akureyri - 24
Ökuhraði í skólahverfum
Að venju hefður lögreglan á Akureyri haldið uppi eftirliti m.a. með ökuhraða við skóla bæjarins í upphafi þessa skólaárs. Til þess hefur hún notað merkta sem ómerkta bíla og þá einnig verið með færanlega hraðamyndavél sem hefur sýnt það glögglega...
Meira
7. september 2011 | Seyðisfjörður - 26
Sektaðir fyrir utanvegaakstur
Fjórir erlendir ferðamenn gengust í dag undir sektir vegna utanvegaksturs. Brotin voru framin í umdæmi lögreglustjórans á Húsavík. Lögreglan á Húsavík rannsakaði málið og sendi lögreglunni á Seyðisfirði það til afgreiðslu, þar sem ferðamennirnir...
Meira
7. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Notum bílbelti
Þótt mikilvægi bílbelta sé flestum ljóst eru enn margir sem hirða ekki um að nota þennan sjálfsagða öryggisbúnað. Gögn sýna að líkurnar á því að slasast í umferðinni eru margfalt meiri meðal þeirra sem nota ekki bílbelti. Þetta er rifjað upp hér því...
Meira
7. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ódæll ökumaður handtekinn
Kona á fertugsaldri var handtekin í Kópavogi í fyrradag en sú var ekki sátt við afskipti lögreglu. Konan var staðin að verki þar sem hún ók bíl án þess að nota bílbelti og var jafnframt að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað.
Meira
7. september 2011 | Suðurnes - 08
Fréttatilkynning vegna andláts
7. september 2011. Fréttatilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum Voveiflegt andlát manns í fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum Við reglubundið eftirlit lögreglu með fanga í fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum um kl. 23:20...
Meira
7. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ölvunar - og fíkniefnaakstur
Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt en þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þetta voru þrír karlar, 32-46 ára, og ein kona á sjötugsaldri. Tvær aðrar konur voru...
Meira
7. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrot í borginni
Þrjú innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar í gær. Brotist var inn í skúr og geymslu í miðborginni og þaðan stolið ýmsu dóti. Þá var brotist inn í bíl í vesturbænum og úr honum tekin verkfæri. ...
Meira
7. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisræktun í fjölbýlishúsi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í austurborginni í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 10 kannabisplöntur, auk græðlinga. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja...
Meira
6. september 2011 | Akureyri - 24
Mældur á yfir 160 km/klst hraða í Héðinsfjarðargöngunum
Lögreglumenn á eftirliti í Héðinsfjarðargöngum mældu í gærkvöldi bifreið á yfir 160 km/klst hraða en bifreiðin var að aka frá Ólafsfirði til Siglufjarðar. Hámarkshraði í Héðinsfjarðargöngunum er 70 km/klst. Lögreglumenn misstu sjónar af bifreiðinni...
Meira
5. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisplöntur og snákar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Garðabæ á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 30 kannabisplöntur og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Á sama stað var einnig að finna þrjá snáka og voru þeir...
Meira
5. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Kannabisræktun í Kópavogi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 50 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Karl um fimmtugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi...
Meira
5. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur
Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, níu á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru...
Meira
5. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Tíu óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru tíu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag og sex á sunnudag. Þetta...
Meira
4. september 2011 | Suðurnes - 08
Fréttir af Ljósanótt 2011
Fréttir af Ljósanótt 2011 frá lögreglunni á Suðurnesjum Mikill mannfjöldi var á Ljósanótt í Reykjanesbæ og var hápunkturinn laugardagakvöldið þegar metfjöldi mætti í miðbæinn. Húsbílar og hjólhýsi fylltu öll tjaldsvæði, sem boðin voru uppá og...
Meira
2. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Mannlífið í borginni
Mannlífið í borginni er fjölbreytt, rétt eins og verkefni lögreglu. Í gærmorgun var hún kölluð til þegar drukkinn karl á fertugsaldri hugðist taka sér far með strætó. Slíkt er ekki alltaf lögreglumál en í þessu tilviki framvísaði maðurinn farmiða...
Meira
2. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Innbrot í bíla
Brotist var inn í þrjá bíla í Reykjavík í gær og radarvara stolið úr þeim öllum. Tveir bílanna voru í Bryggjuhverfinu en sá þriðji í Grafarvogi. Þjófar reyndu líka að brjótast inn í bíl í Árbæ en til þeirra sást og voru þeir þá fljótir að láta sig...
Meira
2. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Fíkniefnamál í Hafnarfirði
Fíkniefni fundust á þremur stöðum í Hafnarfirði í gær. Um var að ræða bæði amfetamín og kannabisefni. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við þessar aðgerðir...
Meira
1. september 2011 | Höfuðborgarsvæðið - 07
Ofsaakstur á bifhjóli
Karl á fertugsaldri var tekinn fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut í Garðabæ eftir hádegi í gær. Sá ók bifhjóli sem mældist á 201 km hraða. Maðurinn, sem hefur áður gerst sekur um umferðarlagabrot, var sviptur ökuréttindum á...
Meira

2013
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2012
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2011
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2010
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2009
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2008
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2007
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2006
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2005
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2004
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2003
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2002
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2001
Desember
Nóvember
Október
September

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
að fyrstu tveir lögregluþjónarnir í Reykjavík hófu störf á árinu 1803 ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur