10 Febrúar 2016 19:11

Í morgun kl. 10:39 barst tilkynning til Neyðarlínu um að maður hafi fallið í sjóinn við Reynisfjöru í Mýrdal. Lögregla, björgunarsveitir og sjúkraflutningamenn fóru þegar á vettvang og náðist maðurinn um borð í bát björgunarsveitar en lífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.    Hann var Kínverskur ríkisborgari , fæddur 1976, ferðamaður hér á landi ásamt eiginkonu sinni.

Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi hefur leitt í ljós að maðurinn stóð á sjálfstætt standandi stuðlabergssteini, um 50 sm. háum, í nokkurra metra fjarlægð frá stuðlaberginu í Reynisfjalli og var þar við myndatöku.   Úthafsalda braut þá á steininum og greip manninn sem sogaðist út með henni og drukknaði.  Á meðfylgjandi mynd má sjá stein þann er maðurinn stóð á þegar slysið varð.

Steinn sá er maðurinn stóð á þegar aldan greip hann