27 Janúar 2017 11:35

Óvenju mikið hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Bíll valt í mikilli hálku á Grindavíkurvegi og voru allir sem í honum voru, sex manns, fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Á Vatnsleysustrandarvegi valt önnur bifreið, einnig í mikilli hálku. Tveir voru fluttir á HSS en reyndust ómeiddir. Loks rann bifreið út af Garðvegi og endaði á hraunbungu. Þar var einnig mikil hálka.

Auk þessa var nokkuð um árekstra. En ekki urðu teljandi meiðsl á fólki en talsvert tjón á sumum ökutækjanna.