21 Maí 2014 12:00

Þann 14. maí s.l. samþykkti Alþingi breytingar á lögreglulögum sem varða almenn inntökuskilyrði í Lögregluskóla ríkisins. Einnig var samþykkt að ráðherra myndi starfshóp sem á að endurskoða skipulag og starfsemi Lögregluskóla ríkisins og gera tillögu að framtíðarskipan lögreglumenntunar. Starfshópurinn skal skila tillögum ásamt greinargerð til ráðherra ekki síðar en 1. ágúst 2014.

Með vísan til þessara lagaákvæða er ekki ljóst hvenær nýnemar verða næst teknir inn í Lögregluskóla ríkisins en ákvörðun um það verður birt jafnskjótt og hún liggur fyrir.