Lögreglumappan 2 – fræðsluefni lögreglunnar fyrir foreldra og uppalendur.
Lögreglumappan er ætluð fyrir lögreglumenn sem eru að fara á foreldrafundi og aðra fundi þar sem fræðsluefnið á við. Forvarnirnar beinast fyrst og fremst að þeim sem ekki eru farnir að neyta fíkniefna og markmiðið er að hindra, eða a.m.k. að tefja fyrir, að neysla hefjist. Mappan kemur inn á þætti eins og: • Lög um tóbaksvarnir nr. 95/2001, 8 gr: Tóbak má hvorki selja né afhenda einstaklingum yngri en 18 ára. Bann þetta skal auglýst með áberandi hætti þar sem tóbak er selt. • Mikilvægi þess að styrkja unglinginn í að segja NEI og setja skýr mörk. Skýr afstaða foreldra er góð trygging fyrir því að unglingurinn byrji ekki að reykja... • Oft heyra foreldrar ,,allir hinir” fá að gera hitt eða þetta, að enginn þurfi að fylgja sömu reglum og barnið okkar, að þau séu alltaf einu krakkarnir sem mega ekki... • Löglegu vímugjafarnir tóbak og áfengi – því meira sem foreldrar vita um hagi, ferðir og félaga barna sinna á unglingsaldri, því síður lenda þau í vandræðum vegna áfengis og vímuefna • Áfengislögin - foreldrar og aðrir sem aðstoða börn og unglinga við að verða sér úti um áfengi þurfa að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir • Hvenær byrja unglingarnir að finna fyrir auknum þrýstingi – flestar félagsmiðstöðvar landsins hafa hin síðari ár beitt sér gegn notkun tóbaks og áfengis. Nú er bannað að reykja í félagsmiðstöðvum og á lóðum þeirra svo að ekki sé talað um að neyta áfengis • Samstaða foreldra – foreldrar þurfa að standa saman • Útivistarreglur – sum málefni eru þannig vaxin að misræmi milli heimila geta verið bagaleg. Dæmi um þetta eru t.d. útivistarreglurnar • Unglingapartí – eftirlitslaus partí eru áhættusöm. Þetta snýst ekki um traust til barnsins. Sköpum börnum okkar aðstæður sem þau ráða við • Foreldrarölt – foreldrarölt er einfalt í framkvæmd og meira að segja má hafa af því nokkra skemmtun • Almennar upplýsingar um fíkniefni • Annað... Þegar barnið hefur grunnskólanám víkkar sjóndeildarhringurinn og áhrif vina, kennara og fjölmiðla verða smám saman sterkari. Þegar krakkarnir komast á kynþroskaaldurinn verður vinahópurinn mjög sterkur áhrifavaldur og unglingurinn finnur oft til meiri samkenndar með honum en foreldrunum og öðru fullorðnu fólki. Því meira sem foreldrar vita um hagi, ferðir og félaga barna sinna á unglingsaldri, því síður lenda þau í vandræðum vegna áfengis og vímuefna. Með öðrum orðum – því betur sem við fylgjumst með unglingnum okkar því meiri líkur eru á að hann komist hnökralaust í gegnum unglingsárin. Hér á landi er ýmislegt gert til þess að draga úr framboði á fíkniefnum, einkum þó með lögum og reglum. Sum efni er bannað að flytja til landsins og því fylgt eftir með þungum viðurlögum. Ákveðnar reglur eru um þau efni sem flytja má til landsins, þ.e. áfengi og tóbak.
|