Umferðarmál.
Um helgina hafði lögregla afskipti af fjórum ökumönnum sem grunaðir eru um ölvun við akstur, þar af hafði einn þeirra valdið eignaspjöllum með aksturslagi sínu, ekið niður umferðarmerki. Tuttugu og þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs og fimm boðaðir með bifreiðar sínar til skoðunar vegna vanrækslu á aðalskoðun.
Sex umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu, þar af eitt umferðarslys þar sem ekið var á gangandi vegfaranda við gangbrautarljós. Bar ökumaður því við að hann hafi blindast af sól og ekki séð hinn gangandi þar sem hann var á leið yfir gangbraut. Ökumaður var hinsvegar á lítilli ferð og meiðsl því minniháttar.
Annað:
Lögreglu barst tilkynning um fjóra þjófnaði um helgina. Í tveimur þeirra tilvika var um þjófnað á reiðhjóli að ræða. Þá bárust þrjár tilkynningar um minniháttar eignaspjöll, rúðubrot í öllum tilvikum.
Tvö fíkniefnamál komu upp við venjubundið eftirlit lögreglu þar sem haldlagt var lítilræði af hassi í öðru tilvikinu og amfetamíni í hinu. Fjórir karlmenn voru handteknir vegna þessara mála. Rannsókn er að mestu lokið. |