Í samræmi við reglugerð um akstursíþróttir hefur ríkislögreglustjóri gefið út verklagsreglur fyrir akstursíþróttir og aksturskeppnir. Hér fyrir neðan eru tenglar sem hægt er að smella á til að kynna sér reglugerðina sjálfa og sömuleiðis til að skoða verklagsreglurnar, með gildistöku 15. apríl 2008. Neðst er síðan tengill á umsóknareyðublað sem fylla þarf út þegar sótt er um að halda aksturskeppni. Hægt er að fylla út eyðublaðið á skjánum og prenta síðan út. Umsóknum skal skilað til lögreglu í því umdæmi sem keppnin er haldin. >Reglugerð um akstursíþróttir nr. 507/2007 >Verklagsreglur fyrir akstursíþróttir og aksturskeppnir í samræmi við reglugerð nr. 507/2007 >Umsóknareyðublað um leyfi fyrir akstursíþróttum |