|
|
 |
| |
Vestfirðir - 18 - Fréttir |
|
|
 |
|
| 1.11.2001 |
Æfing í aðgerðum gagnvart aðilum sem tengjast fíkniefnamisferli var haldin á Patreksfirði í gær. |
Í gær stóðu starfsmenn rannsóknardeildar lögreglunnar á Ísafirði fyrir æfingu fyrir fastráðna lögreglumenn og héraðslögreglumenn á Patreksfirði. Um var að ræða æfingu í aðgerðum gagnvart aðilum er tengjast fíkniefnamisferli. Þarna voru m.a. verklegar æfingar þar sem rifjaðar voru upp þær aðferðir, nýjar og gamlar, sem notaðar eru í þessu sambandi. Þær verða, að sjálfsögðu, ekki raktar nánar á þessum vettvangi. Auk þessara verklegu æfinga voru haldnir fyrirlestrar er lúta að ýmsum atriðum er varða aukna upplýsingaöflun og rannsóknir fíkniefnamála. Þá var rætt um fíkniefnaforvarnir og þátttöku lögreglunnar í þeim, með sveitarstjórnum, skólum, foreldrum og öðrum er eiga beinna og óbeinna hagsmuna að gæta. Á Patreksfirði eru fjórir lögreglumenn í fullu starfi, auk 6 héraðslögreglumanna. Allir þessir, utan einn, tóku þátt í æfingunum sem þóttu takast mjög vel. Sá sjötti er héraðslögreglumaður í Reykhólasveit og mun hann taka þátt í æfingum með lögreglunni á Hólmavík, sem haldin verður fljótlega. Í framhaldi verða haldnar svipaðar æfingar fyrir lögregluliðin á Ísafirði og í Bolungarvík. Æfingin er liður í þeirri þjálfun sem rannsóknardeild lögreglunnar á Ísafirði mun standa fyrir og varða fíkniefnamálefni á Aðgerðarsvæði 2. Til upplýsinga þá hefur landinu verið skipt upp í 5 aðgerðarsvæði. Þetta var gert af ríkislögreglustjóranum, með sérstökum fyrirmælum árið 1999, og tilheyra lögreglustjóraumdæmin fjögur á Vestfjörðum Aðgerðarsvæði nr. 2. Þessi ákvörðun kom í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar, með útfærslu dómsmálaráðuneytisins um að efla löggæslu á sviði fíkniefnarannsókna og forvarna, tengda málaflokkinum. Þá var landinu skipt í 5 aðgerðarsvæði og jafnframt var komið fyrir einu stöðugildi á hverju aðgerðarsvæði. Stöðugildið á aðgerðarsvæði 2 er í rannsóknardeild lögreglunnar á Ísafirði, sem hefur aðstoðarskyldu gagnvart lögregluliðunum á aðgerðarsvæðinu. Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var að lokinni æfingunni í gær, eru eftirtaldir, talið frá vinstri : Jónas Sigurðsson, aðalvarðstjóri, Jónas Þór varðstjóri, Skúli Berg rannsóknarlögreglumaður á Ísafirði, Ólafur B Baldursson héraðslögreglum., Davíð Rúnar Gunnarsson héraðslögreglumaður Ingþór Guðjónsson lögreglumaður, Þór Þórðarson héraðslögreglumaður Sveinn Ólafsson flokkstjóri, Kristín Ólafsdóttir héraðslögreglumaður Grétar J Guðmundsson héraðslögreglumaður og Hlynur Snorrason lögreglufulltrúi á Ísafirði.  |
Senda frétt |
| Til baka |
|
|
|
 |
 |
 |
| |
|
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
 |
 |
 |
Vissir
þú að....
ríkislögreglustjórinn fer með yfirstjórn lögreglumála í umboði dómsmálaráðherra ? |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
| |
.jpg) |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
.jpg) |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
.gif) |
|
| |
 |
|
|