Nokkur erill var hjá lögreglunni á Vestfjörðum í tengslum við hátíðan Aldrei fór ég suður um liðna helgi. Margir gestir komu á hátíðina og einnig komu margir á skíði.
Umferðin vestur gekk vel og án óhappa, þó var bensínfóturinn nokkuð þungur hjá sumum og voru 31 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, bæði á leið suður og vestur. Akstursskilyrði á gær annan í páskum voru mjög slæm og færð ekki góð og urðu 5 umferðaróhöpp á Djúpvegi, talsverðar skemmdir urðu á ökutækum, en ekki slys á fólki. Margir sem á ferðinni voru, voru illa búnir til aksturs í vetrarfærð, búnir að skipta yfir á sumardekkin, þurfti því að aðstoða marga vegfarendur á leiðinni um Ísafjarðardjúp, Steingrímsfjarðarheið og um Þröskulda, kallaðar voru út björgunarsveitir frá Hólmavík og Reykhólum til aðstoðar ásamt lögreglu.
Um helgina komu upp 6 fíkniefnamál þar af tengdust 3 hátíðinni Aldrei fór ég suður. Um lítið magn fíkniefna var að ræða í þessum málum.
Lögreglan á Vestfjörðum fékk til rannsóknar meint kynferðisbrot sem talið er hafa átt sér stað í heimahúsi aðfaranótt 8. apríl sl. Einn aðili var handtekinn að morgni þessa dags. Hann hefur verið yfirheyrður vegna málsins. Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Vestfjörðum.
Lögreglan hafði afskipti fólki sem gisti í nokkrum sumarhúsum í Tunguskógi um helgina, en eins og kunnugt er, er bönnuð næturdvöl í húsunum fram að 15. apríl. Skýrsla um málið verður send viðkomandi bæjarfélgi. |