Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Selfoss - 33  
 Fréttir  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Leyfi - Eyðublöð  
 Myndasafn  
 Ársskýrsla  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Selfoss - 33 - Helstu verkefni   
11.8.2003

Dagbók vikuna 0408-110803

Dagbók vikuna 5.-11. ágúst 2003.

 

 

Alls voru 269 verkefni bókuð þessa viku. Nokkuð annasamt var hjá lögreglunni vegna sjúkraflutninga en 25 slíkir voru skráðir. Flestir þessara sjúkraflutninga enduðu á sjúkrahúsi í Reykjavík og því nokkur tími sem fór í hvern sjúkraflutning.

 

Umferðin

Þrettán umferðaóhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni og urðu slys á fólki í nokkrum þeirra. Á föstudag var hópbifreið ekið aftan á sendibíl á Ölfusárbrú á Selfossi. Áreksturinn var nokkuð harður og hlaut ökumaður sendibílsins minniháttar áverka. Umferðartafir urðu um tíma á Ölfusárbrú vegna árekstursins. Þá valt hópbifreið á Kjalvegi, skammt sunnan Grjótár, á miðvikudagskvöld. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og slasaðist hann talsvert og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík. Bæði þessi slys eru til rannsóknar hjá lögreglu og beinist rannsóknin meðal annars að ástandi hópbifreiðanna.

Á föstudag kom þriðja hópbifreiðin við sögu í umferðaróhappi þegar tveir erlendir ferðamenn slösuðust og voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík. Slysið varð með þeim hætti að ökumaðurinn veitti ekki athygli hraðahindrun sem er við Laugarás og ók of geyst yfir hana með þeim afleiðingum að ferðamennirnir tveir sem voru farþegar í bifreiðinni köstuðust upp úr sætum sínum og skullu í þak hópbifreiðarinnar. Ekki er talið að meiðsl ferðamannanna séu alvarleg. Ætla má að bílbelti hefðu getað komið í veg fyrir þetta slys hefðu þau verið notuð líkt og lög gera ráð fyrir.

Alls voru 24 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni og einn fyrir ölvun við akstur. Tveir ökumenn voru staðnir að því að aka bifreið eftir að hafa verið sviptir ökuréttindum. Þessir tveir mega búast við háum sektum fyrir brot sín, jafnvel fangelsi. Einn var kærður fyrir að leggja bifreið sinni á gangstétt á Austurvegi á Selfossi og fimm fyrir að vanrækja að færa ökutæki sín til skoðunar.

 

Ýmislegt

Um helgina var hald lagt á fíkniefni í húsi á Árborgarsvæðinu. Þá komu upp tvö mál í fangelsinu að Litla-Hrauni þar sem fangaverðir fundu fíkniefni í fórum fanga. Mál þessi eru í rannsókn.

Sjö sinnum aðstoðaði lögregla fólk sem læst hafði lykla inni í bifreiðum sínum og í tveim tilfellum voru íbúar aðstoðaðir við að komast inn í læst hús eftir að hafa læst sig úti.


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
ríkislögreglustjórinn fer með yfirstjórn lögreglumála í umboði dómsmálaráðherra ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur