| Almennt
Talsvert annríki er búið að vera hjá lögreglunni í Árnessýslu síðastliðna viku. Samtals voru skráð 392 verkefni í dagbók og mikil umferð var í sýslunni.
Umferðin
Alls voru 68 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni og var hraðinn frekar mikill því talsvert var af ökumönnum sem óku á yfir 120 km/klst þar sem hámarkshraði er 90. Tveir ökumenn óku á yfir 130 km/klst og sá sem hraðast ók mældist á 143 km/klst á Suðurlandsveginum.
Fimm ökumenn voru kærðir fyrir ölvun við akstur. Á Flúðum virti einn ökumaður ekki stöðvunarmerki lögreglu og reyndi að komast undan. Eftir stutta eftirför hafnaði bifreið hans utanvegar. Viðkomandi gafst þó ekki upp við það og reyndi að komast undan á hlaupum en hafði ekki árangur sem erfiði því laganna verðir hlupu hann uppi. Aðfaranótt sunnudags stöðvaði lögregla svo einn ökumann á Selfossi og var hann grunaður um ölvun við akstur. Sá brást ókvæða við og þurfti að gista fangageymslur lögreglunnar vegna annarlegs ástands.
Þó nokkuð var um umferðaróhöpp í vikunni og var tilkynnt um 12 slík. Í þremur þeirra var um slys að ræða. Mánudaginn 21. júní slösuðust tveir ökumenn lítillega er bifreiðar þeirra rákust saman á Skeiða- og Hrunamannavegi. Tveir erlendir ferðamenn geta þakkað bílbeltum fyrir að hafa sloppið við mikil meiðsli er bifreið þeirra hafnaði utan vegar og valt á Suðurlandsvegi skammt austan við Þjórsá. Skömmu eftir hádegi í gær var svo ekið á hjólreiðamann á móts við Björk á Eyrarbakkavegi. Hjólreiðamaðurinn var ekki með hjálm og fékk skurð á höfuð. Hann var fluttur á slysadeild Landsspítalans í Fossvogi með sjúkrabifreið en hann var ekki talinn mikið slasaður.
Eigendur 41 bifreiða voru kærðir fyrir að vanrækja að færa bifreiðar sínar til skoðunar í vikunni.
Eignaspjöll og innbrot
Tilkynnt var um tvö innbrot í vikunni. Annað í Hveragerði og hitt á Selfossi. Í báðum innbrotunum var farið inn í vinnuskúra og stolið þaðan verkfærum. Ef einhver er með einhverja vitneskju um þessi innbrot er hann beðinn að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480-1010
Í gær var tilkynnt frá Þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum að spenntur hafði verið upp póstkassi þar. Ekki var vitað hvort að einhver bréf hafi verið í póstkassanum er hann var spenntur upp.
Skemmdir voru unnar á þremur bifreiðum á Selfossi í kringum helgina. Tvær bifreiðanna voru í Baugstjörn og ein í Úthaga. Ef einhver er með einhverja vitneskju um þessi eignaspjöll er hann beðinn að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480-1010
Sjúkraflutningar
Alls voru 15 sjúkraflutningar í vikunni. |