Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Selfoss - 33  
 Fréttir  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Leyfi - Eyðublöð  
 Myndasafn  
 Ársskýrsla  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Selfoss - 33 - Helstu verkefni   
20.11.2006

Helstu verkefni vikuna 14. - 20. nóv. 2006

Tvö fíkniefnamál komu upp á Litla Hrauni í síðustu viku.  Fyrra málið tengdist strokufanga sem gaf sig fram fyrir helgi.  Hann var sendur í röntgenmyndatöku eftir komu í fangelsið.  Kom þá í ljós að í endaþarmi væri aðskotahlutir.  Við nánari skoðum reyndust það vera um 40 grömm af amfetamíni og nokkuð magn af steratöflum. 

 

Á föstudag vaknaði grunur um að tvær konur sem voru að koma í heimsókn væri hugsanlega með fíkniefni.  Fíkniefnahundur lögreglunnar í Reykjavík sem var á Litla Hrauni gaf vísbendingu um gruninn.  Konurnar voru handteknar og færðar til röntgenmyndatöku.  Þar kom fram að önnur konan væri með fíkniefni innvortis.  Þetta reyndust vera nokkur grömm af amfetamíni og eitthvað af læknalyfjum.  Báðar konurnar viðurkenndu að hafa átt aðild að því að smigla efnunum inn í fangelsið. 

 

 

Klukkan 03:44 aðfaranótt laugardags barst lögreglu tilkynning um líkamsárás á skemmtistaðnum Pakkhúsinu á Selfossi.  Þarna var um mjög alvarlega árás að ræða þar sem sá er fyrir árásinni varð var fluttur á Landspítalann til aðgerðar vegna beinbrota í andliti sem hlaust af árásinni.  Hann mun hafa verið sleginn hnefahögg og síðan sparkað í hann.  Árásarmaðurinn var handtekinn og færður til yfirheyrslu.  Ekki er annað séð en að árásin hafi verið fyrirvaralaus og án nokkurs tilefnis.  Málið er í rannsókn. 

 

 

Mikið ölvaður maður var handtekinn við Hótel Selfoss aðfaranótt sunnudags.  Hann hafði brotið rúðu í bakhurð hótelsins.  Þegar lögregla kom að manninum var hann með hamar í hendi sem hann sveiflaði.  Lögreglumenn handtóku manninn og færðu í fangageymslu.  Við yfirheyrslu bar maðurinn því við að hann myndi ekki eftir atvikinu en hann mun hafa verið gestur á hótelinu. 

 

Um kl. eitt aðfaranótt fimmtudags barst tilkynning um innbrot í verslun við Breiðumörk í Hveragerði.  Rúða hafði verið brotin í útihurð en þar sem þjófavarnarkerfi fór þegar í stað í gang lögðu innbrotsmennirnir á flótta.  Sjónarvottar sáu á eftir  Toyota fastback bifreið aka í átt frá innbrotsstað að Suðurlandsvegi.  Tilkynnt var um ferðir þessarar bifreiðar í Tetrakerfinu en ekkert hefur spurst til hennar. 

 

Brotist var inn í tvo sumarbústaði í landi Iðu í Biskupstungum á tímabilinu milli 12. og 17. nóvember og þaðan stolið ýmsum munum s.s. mynbandstæki, myndbandsupptökutæki, sjónaukum, afruglara og einhverju af smærri munum.  Eitthvert tjón varð á húsunum eftir innbrotsþjófanna. 

 

Brotist var inn í geymslugám við Litlu-kaffistofuna í Svínahrauni undir morgun á sunnudag.  Þjófurinn hefur þurft að hafa talsvert fyrir því að brjótast inn í gáminn því hann var læstur með öflugri læsingu.  Úr gámnum var stolið gosdrykkjum og ísvara.  Lögregla biður þá sem veitt geta upplýsingar um þessi innbrota að hafa samband í síma 480 1010.

 

Fimm ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur um helgina.  Einn þeirra var tekinn á Selfossi og reyndist hann vera 16 ára og hafði ekki ökuréttindi.  Í gærkvöldi veittu lögreglumenn athygli bifreið sem var ekið eftir reiðvegi meðfram Suðurlandsvegi í Flóa.  Þegar afskipti voru höfð af ökumanni bar hann merki um að vera undir áfengisáhrifum.  Hann mun einnig verða kærður fyrir utanvegaakstur. 


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
ríkislögreglustjórinn rekur sameiginlega fjarskiptamiðstöð lögregluembætta á SV-horni landsins ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur