Þessa vikuna voru fimm ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Suðurlandsvegi. Sá sem hraðast ók var á 123 km hraða.
Eitt minniháttar umferðaróhapp varð í Vík, þar varð ökumaður fyrir því óláni að aka aftur á bak á kyrrstæða bifreið.
Færanleg skoðunarstöð Frumherja var í Vík í sl. viku og verður staðsett á Klaustri fram á þriðjudagskvöld. Eigendur þeirra ökutækja sem eiga eftir að fara í skoðun eru hvattir til þess að færa þau til skoðunar, svo að ekki þurfi að koma til afskipta lögreglu.
|