Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Hafnarfjörður - 36  
 Fréttir  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Heimasíða embættisins  
 Stolið - Eftirlýst  
 Stefnumörkun  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Hafnarfjörður - 36 - Umdæmið   
Umdæmið liggur að Gullbringusýslu, Árnessýslu og Kópavogi og er stærð þess um 216 km2. Í umdæminu eru þrír þéttbýlisstaðir, Bessastaðahreppur, Garðabær og Hafnarfjörður. Svæðið markast í norðri og austri af bæjarmörkum Garðabæjar og Kópavogs og í suðri af Hafnarfirði og sýslumörkum Gullbringusýslu. Í Krýsuvík á Hafnarfjörður land er Gullbringusýsla umlykur og er það hluti af lögregluumdæminu.

Umdæmismörkin afmarkast í norðri af línu sem liggur um Skotmóa í Kópavogi, Anrnarneshæð, á Kjóavelli, til suðurs, austan Vatnsendaborgar, um Húsfell í Markraka austan Dauðadals, til vesturs um Undirhlíðar að Markhelluhól og þaðan til norðvesturs í sjó við Markaklett á Hraunsnesi.

Bessastaðahreppur markast af línu sem dregin er á milli Skógtjarnar og Lambúsatjarnar, auk þess sem hreppurinn á sameiginlega með Garðabæ svokallaða almenningsskóga sem er afréttur frá Heiðmörk að að tindum Bláfjalla og er það að stærð 27 km2
Í hreppnum bjuggu 1440 íbúar þann 1. desember s.l. Stærð hreppsins er 6 km2. Í hreppnum er bústaður Forseta Íslands og kemur þangað mikill fjöldi ferðamanna. Einnig eru vinsælar gönguleiðir með sjónum.

Garðabær markast við Bessastaðahrepp um Skógtjörn og Lambhúsastjörn í norðvestri og að Heiðmörk í suðaustri. Í norðaustri á Garðabær land að Kópavogi og Reykjavík, en að Hafnarfirði í suðvestri. Garðabær á sameiginlega með Bessastaðahreppi almenningsskóga.
Hið hefðbundna Garðabæjarland er um 40 km2 auk sameignar við Bessastaðhrepp sem er um27 km2.
Íbúafjöldi í Garðabæ þann 1. desember s.l. var 7927.
Helstu útivistarsvæðin eru Heiðmörkin þar sem eru vinsælar gönguleiðir. Þá má nefna skógræktarsvæðið í Vífilsstaðahlíð, Búrfell og Búrfellsgjá. Í bæjarlandinu eru þrír golfvellir, við Vífilsstaði, í Urriðavatnsdölum og í landi Setbergs.

Hafnarfjörður markast af Garðabæ í norðri og suðvestri og Kópavogi og Grindavíkurhreppi í suðri og Vatnsleysustrandarhreppi í suðaustri.
Í Krýsuvík markast land Hafnarfjarðar að vestan í beinni stefnu í norður frá Hælsvík í Borgarhól eftir Sveifluhálsi í vestustu vík Kleifarvatns. Að norðan ræður Kleifarvatn í syðsta odda víkur er gengur úr vatninu við Geithöfða og að austan í beina stefnu í suður til sjávar í Keflavík.

Hið hefðbundna land Hafnarfjarðar er um 100,2 km2 og stærð Krýsuvíkur eru um 43 km2.
Helstu útivistarsvæðin eru Krýsuvík sem jarðfræðilega er mjög áhugaverður staður.
Í Heiðmörk eru vinsælar gönguleiðir. Í bænum eru m.a sjóminjasafn, byggðasafn, póstminjasafn og leikhús. Í bæjarlandinu er golfvöllur á Hvaleyri.
Íbúafjöldi í Hafnarfirði þann 1. desember s.l. var 19.139

Senda grein

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
hámarksfjöldi umferðarpunkta hjá einstaklingi með ökuskírteini sem gildir til 70 ára aldurs er 12 umferðarpunktar?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur