Umdæmi sýslumannsins á Eskifirði nær frá Gígjukvísl í suðri og norður í Mjóafjörð í norðri að Dalatanga. Íbúafjöldi um 14000.
Talið frá suðri er Sveitarfélagið Hornafjörður, með Skaftafell og mikla og hrikalega náttúru þar sem ueru sanda og jöklar. Jökulsárlón, Suðursveit þar sem Þorbergssetur er á Hala. Hornajförður, Lón, Lónsöræfi. Djúpavogshreppur með Álftafjörð, Hamarsfjörð, og Berufjörð. Helstu ferðamannastaðir og náttúruvætti eru að sjálfsögðu þeir bræður Álftafjörður og Hamarsfjörður með miklum lónum þar sem dýralíf ( fuglalíf ) er mjög fjölbreitt. Þá er Djúpivogur afar fallegur og sérstæður staður þar sem bæjarstæðið er víða umlukið hamraveggjum. Þar er að finna Löngubúð sem er gamalt verslunarhús og í því er Eysteinsstofa Jónssonar en sá ágæti framsóknarmaður var fæddur og uppalin á Djúpavogi. Í Löngubúð er einnig að finna veitingasölu. Örstutt er svo út í Papey en skipulagðar ferðir eru þangað á sumrin. Hótel Framtíð á Djúpavogi er starfrækt allt árið. Mikil veðursæld er á þessum slóðum. Skammt útifyrir er eyjan Papey en skipulegar ferðir eru í eyjuna á sumrin
Í sunnanverðum Berufirði er, um 2 km. frá Djúpavogi, bærinn Teigarhorn en þar er heimsþekkt náttúruvætti. Er þar um að ræða sérstaka gerð af kristöllum svokallaðir Geislasteinar.
Um 10 km. vestar er Fossárdalur en þar er bærinn Eyjólfsstaðir þar sem rekið er gistiheimili. Í Fossárdal er mikil náttúrufegurð og friðsæld.
Þegar komið er í norðan verðan Berufjörð er víða á bæjum bændagisting. Sérstaklega mætti benda á Berunes þar sem sérstæð náttúra lands og sjávar fær að njóta sín nánast til fulls. Þá komum við fyrir Streiti sem er annes á milli Berufjarðar og Breiðdals, og ökum inn Breiðdalinn sunnan verðan. Í Breiðdal rennur Breiðdalsá sem hefur gefið mjög vel af sér í veiði undan farin ár enda áin vel um gengin og ræktuð. Þarna hefur veiðst talsvert af laxi en í meirihluta er þó sjóbirtingur og bleikja. Breiðdalur er rómaður fyrir fjölbreitta og mikla náttúrufegurð. Þegar farið er um Breiðdal er nánast útilokað annað en að koma við á Breiðdalsvík þar sem rekið er eitt frægt hótel Hótel Bláfell. Hótel þetta er mjög rómað víða erlendis. Þarna er upplagt að á.
Frá Breiðdalsvík er farið áfram norður um all hrikalegar skriður, Kambanesskriður, en þær eru þverhníptar í sjó fram víða með þjóðveginum. Gott útsýni til hafsins og oft má sjá smábáta að veiðum. Þá er komið á Stöðvarfjörð. Á Stöðvarfirði er rekið Listagallerí við götuna í gegn um þorpið. Mjög sérstæð gisting er í boði en framtaksamur sjómaður keypti gömlu kirkjuna og breitti henni í afar skemmtilegt og sérstætt gistihús. Hægt er að leigja " kirkjuna" til lengri eða skemmri tíma.
Áfram er haldið norður á bógin og farið fyrir Gvendarnes en þar er sjóhverinn Saxa en hann virkar einungis þegar hafátt er og brimskaflarnir þeytast inn undir bergið og upp um op talsvert langt frá bjargbrún þar sem hafið sprautast upp með miklu afli og tilheyrandi hávaða og sjávargróðri. Nokkru norðar eða þegar komið er inn undir fjarðarkjaft Fáskrúðsfjarðar sunnan verðan er komið að Hafnarnesi. Í Hafnarnesi eru menjar um 100 manna byggð en þarna var smá þorp á fyrrihluta 20 aldar. m.a. var franskur spítali sem staðið hafði inn á Fáskrúðsfirði, fluttur út á nesið og var notaður sem einhverskonar fjölbýlishús. Í sunnan verðum Fáskrúðsfirði er jafnframt afar sérkennilegt fjall svo ekki sé meira sagt. Fjall þetta heitir Sandfell og er ljósbrúnt, út í gult, að lit. Fjall þetta er sérstakt fyrir þá bergtegund sem það er úr og skýrir litabrygði þess en það er svokallaður " Berggeitill". Búðir eða Fáskrúðsfjörður eins og bærinn er kallaður í daglegu tali langflestra Íslendinga, stendur innst í norðan verðum firðinum. Þarna var í eina tíð mikil umsetning franskra duggara sem höfðu bækistöðvar sínar á Fáskrúðsfirði á meðan þeir voru á vertíðum á sumrin aðallega. Á Fáskrúiðsfirði er m.a. franskur grafreitur. Talsverð tengsl eru á milli Fáskrúðsfjarðar og Frakklands enn þann dag í dag. Hótel Bjarg er í hjarta bæjarins, en það er rekið allt árið, og er hið ágætasta hótel, Íþróttahús, sundlaug, tjaldstæði.
Áfram norður á byggð eins og kallað er þegar farið er um sveitina norðan við Fáskrúðsfjörð, áleiðis til Reyðarfjarðar. Yst úti við haf er eyja nokkur mjög fögur og sértök en það er Skrúður sem sést mjög vel frá þjóðveginum um Vattarnesskriður. Þarna fá orð ekki lýst fegurð náttúrunar, átökum á milli lands og sjávar, dýralífi og hrikaleik. Til eru þjóðsögur um tröllið Skrúðsbónda sem nam prestsdótturina á Hólmum í Reyðarfirði, á brott og hafði hjá sér í helli miklum og dimmum í eyjunni Skrúð. Hellir einn mikill er í Skrúð. Önnur eyja er nokkru norðar en það er Seley. Þar er jafnframt mikið fuglalíf og selir stundum áberandi. Eyjan er nytjuð til dúntekju. Nokkru norðar er hið eiginlega Vattarnes, sem er kennt við enn eitt tröllið.
Farið er inn Reyðarfjörð sunnan verðan þar er vissulega mikil náttúrufegurð og nokkrir sveitabæjir enn í byggð. Þá er komið á Reyðarfjörð þar er rekið Fosshótel, og öll hefðbundin ferðamannaþjónusta, tjaldstæði, sundlaug, íþróttahús. Á Reyðarfirði er Stríðsminjasafn Íslands til húsa í svokölluðum spítalakampi mjög virðulegt og athyglivert safn. Mikil umsvif voru á Reyðarfirði á hernámsárunum. Reyðarfjörður hefur verið mjög í hinni daglegu amsturslegu umræðu vegna fyrirhugaðrar byggingar álvers.
Áfram norður og næst til Eskifjarðar. Nesið á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar heitir Hólmanes og er það á náttúruminjaskrá. Þar er mjög mikil náttúrufegurð og sérstaklega mikið fuglalíf. Á Eskifirði er sjóminjasafn Austurlands til húsa og er hið ágætasta safn fyrir margra hluta sakir. Hótel Askja er rekið í gömlu vinalegu húsi nánast í hjarta bæjarins, Pizza 67, Valhöll sem er skemmtistaður, íþróttahús, gott tjaldstæði,. Út með Eskifirði og Reyðarfirði norðanverðum er Helgustaðahreppur en þar skammt austan við bæinn Helgustaði er ein stærsta silfurbergsnáma í heimi. Náman er friðlýst.
Áfram norður áleiðis til Neskaupstaðar yfir einn hrikalegasta fjallveg landsins. Þarna er farið upp í um fimmhundruð og 60 metra hæð yfir sjávarmál og útsýnið maður,. alveg ótrúlegt. Í gegn um Oddskarðsgöng eða upp á Oddskarð og áfram niður í Oddsdal og Skuggahlíð yfir Norðfjarðará og komum í blómlega sveit þar sem stundaður er fjölbreittur búskapur. Eitt albesta skíðasvæði landsins er rekið í Oddskarði. Neskaupstaður er frægur staður það er alveg klárt. Þessi staður var kallaður Litla Moskva vegna pólitískra skoðana íbúanna flestra. þarna hafa alist upp þingmenn svo sem eins og Lúðvík Jósepsson, Hjörleifur Guttormsson. Mikið hefur verið gert fyrir ferðamenn í Neskaupstað má þar nefna Fjarðarferðir sem bjóða upp á siglingar með skemmtisnekkju um firðina, Barðsnesið, Nípuna, Mjóafjörð, og Norðfjarðarflóann. Í Neskaupstað hlær lognið alveg sérstaklega dátt, eins og annarstaðar í umdæminu. Mjóifjörður er norðan við Norðfjörð þar er hefðbundin búskapur, sjósókn á smábátum. Í sólbrekku er rekið gistiheimili og veitingastaður á sumrum. Í Mjóafirði er alveg sérstaklega fallegt og hafi menn séð Systrafossinn innst í firðinum, á góðum degi, þá gleymist sú sýn aldrei. Þar er nú rekið umfangsmikið laxeldi
Reyðarfjörður, Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Mjóifjörður og Neskaupstaður eru sameinuð sveitarfélög undir nafninu Fjarðarbyggð. |