|
|
|
Umdæmi lögreglustjórans í Reykjavík náði eingöngu til Reykjavíkur fram til ársins 1988 er Mosfellsbær, Seltjarnarnes, Kjalarnes og Kjós voru sameinuð lögsagnarumdæminu. Við þessa sameiningu stækkaði umdæmið verulega og er í dag 472,1 ferkílómetrar. Umdæmið er því mjög víðfeðmt og nær bæði yfir þéttbýli og dreifbýli. Kröfur til löggæslu eru ólíkar eftir svæðum innan umdæmisins, löggæsla á Kjalarnesi og í Kjós snýr að mestu leyti að umferðareftirliti en löggæsla í miðborginni aftur á móti í mun meiri mæli að eftirliti með eignum og umsjón með því að skemmtanahald fari friðsamlega fram. Starf lögreglu litast einnig af því að höfuðborg landsins er innan umdæmisins. Því fylgir m.a. nokkur starfsemi í kringum stjórnsýslu landsins, sendiráð og opinberar heimsóknir erlendra aðila. Þá krefjast stórviðburðir eins og íþróttakappleikir og ráðstefnur, sem jafnan fara fram í Reykjavík, oftast aukinnar löggæslu.
Umdæmi lögreglustjórans í Reykjavík er fjölmennasta umdæmi landsins með 124.668 íbúa. Langtum flestir eru búsettir í Reykjavík eða 113.387, þá eru 6.573 manns búsettir í Mosfellsbæ, 4.566 á Seltjarnarnesi og 142 í Kjósarhreppi. Þar sem um fjölmennasta umdæmið er að ræða eru jafnframt flestir lögreglumenn starfandi hjá embættinu. Við árslok 2002 voru 283 lögreglumenn starfandi hjá embættinu eða einn lögreglumaður á hverja 437 íbúa. |
Senda grein |
|
|
|
 |
 |
 |
| |
|
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
 |
 |
 |
Vissir
þú að....
ríkislögreglustjórinn rekur sameiginlega fjarskiptamiðstöð lögregluembætta á SV-horni landsins ? |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
| |
.jpg) |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
.jpg) |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
.gif) |
|
| |
 |
|
|