Föstudaginn 24. febrúar 2012 fór brautskráning nemenda Lögregluskóla ríkisins fram viđ hátíđlega athöfn í Bústađakirkju. Brautskráđir voru 18 nemendur sem hófu nám viđ skólann ţann 1. mars 2011. Hlutfall kvenna í hópi brautskráđra var 27,8%.
Viđ athöfnina fluttu ávörp Arnar Guđmundsson, skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, Ögmundur Jónasson, innanríkisráđherra, Gunnlaugur V. Snćvarr, fyrrverandi yfirlögregluţjónn viđ Lögregluskóla ríkisins og Tryggvi Hjaltason, sem talađi fyrir hönd útskriftarhópsins. Lögreglukór Reykjavíkur söng tvö lög viđ athöfnina.
Hćstu međaleinkunn á lokaprófum náđi Lárus Kazmi međ međaleinkunnina 8,97, í öđru sćti varđ Tryggvi Hjaltason međ međaleinkunnina 8,93 og í ţriđja sćti varđ Axel Freyr Ásmundsson međ međaleinkunnina 8,67. Allir ţessir nemendur fengu viđurkenningu frá skólanum fyrir góđan námsárangur. Međaleinkunn allra útskriftarnemendanna var 8,16.
Ögmundur Jónasson afhenti Guđmundi Viđari Berg, Hildi Ţuríđi Rúnarsdóttur og Jóhönnu Ţorbjörgu Magnúsdóttur sérstaka viđurkenningu fyrir ađ ná glćstum árangri í íslensku. Viđurkenningin er annars vegar farandbikar, sem gefinn var af dómsmálaráđherra á sínum tíma, og hins vegar bókarverđlaun sem gefin eru af Landssambandi lögreglumanna.
Lögreglufulltrúarnir sem starfa viđ Lögregluskóla ríkisins völdu úr hópi nemenda „Lögreglumann skólans“ og varđ Magnús Pálsson fyrir valinu.

|