|
|
|
- Hvað getur þú gert ef þú færð sent sektarboð ?
Ef þú færð sent sektarboð, þarft þú að gæta að því að mál þitt er komið inn í sjálfvirkan feril sekta í sektarkerfi lögreglunnar.
Þér er boðið upp á að ljúka máli með því að viðurkenna brot þitt með greiðslu sektarboðsins. Ef þú greiðir innan 30 daga frá dagsetningu sektarboðsins, færð þú 25% afslátt af sektarfjárhæðinni. Ef þú sinnir ekki sektarboðinu innan 30 daga, færð þú ítrekun vegna sektarboðsins, sem verður birt þér með formlegum hætti. Greiðir þú ekki sektarboðið eða sinnir því ekki á annan hátt, verður mál þitt sent til héraðsdóms að öðrum 30 dögum liðnum, þar sem dómari áritar sektarboðið ef hann telur brotið upplýst. Slík áritun hefur sama gildi og dómur.
Ef þú viðurkennir ekki brot þitt átt þú líka kost á því að mótmæla. Þú getur farið á næstu lögreglustöð og fengið skýringar. Ef þú ert enn ósáttur, eftir að hafa fengið skýringar, þá getur þú mótmælt sektinni og sektarboðið verður fellt niður. Málið fer þá inn í annan farveg, það er að segja að gefin verður út ákæra, telji lögreglustjóri að brotið sé upplýst. Dómari kveður þá upp um sekt eða sýknu.
Athugaðu að varðandi sektarboð á árunum 1998 - 2001 var eftirfarandi staðreynd:
- 63,5% sektarboða voru greidd innan 30 daga og fékkst þannig 25% afsláttur af sektinni
- 20,5% sektarboða voru greidd eftir að 30 dagar voru liðnir og afsláttur var fallinn úr gildi.
- 13,6% sektarboða voru árituð af héraðsdómara og hlutu þannig ígildi dóms
- 1,6% sektarboða fóru í dómsmeðferð, þ.e. ákært var í málunum
- 0,8% sektarboða eru enn í vinnslu
Að þessu gefnu, má álykta að happasælast sé að greiða útsend sektarboð strax, ef þú mótmælir ekki brotinu.
|
Senda grein |
|
|
|
 |
 |
 |
| |
|
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
 |
 |
 |
Vissir
þú að....
að frá og með 1. janúar hefur lögreglustjórinn á Ísafirði haft með höndum stjórn löggæslu á Vestfjörðum og tók yfir stjórn löggæslu í Bolungavík, á Hólmavík og á Patreksfirði |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
| |
.jpg) |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
.jpg) |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
.gif) |
|
| |
 |
|
|