Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
 Fréttir  
 Tilkynningar  
 Ársskýrsla 2011  
 Skipurit  
 Langtímaáætlun  
 Almennar upplýsingar  
 Fyrirspurnir  
 Myndasafn  
 Inntaka nýnema  
 Grunnnámsdeild  
 Framhaldsdeild  
   Námsvísir  
   Námskeið erlendis  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Framhaldsdeild   

Lögregluskóli ríkisins starfar í tveimur deildum, grunndeild og framhaldsdeild. Framhaldsdeildin er fyrst og fremst rekin sem þjónustustofnun fyrir lögregluembætti landsins. Þar eru haldin námskeið á þremur aðgreindum sviðum. Er þar fyrst að nefna símenntunarsvið þar sem lögreglumönnum er boðið að koma á fimm ára fresti á skipulegt símenntunarnámskeið þar sem lögð er áhersla á upprifjun og kynningu nýmæla á starfssviðinu. Þá er það sérmenntunarsvið þar sem lögreglumönnum og e.a. öðrum er boðið að sækja námskeið sem miða aðallega að því að byggja upp sérþekkingu innan lögreglunnar á ýmsum sviðum. Þriðja sviðið er svo stjórnunarsvið sem í lögreglulögunum er kallað framhaldsmenntun. Þar er haldið nám fyrir stjórnendur í lögreglu, bæði starfandi og verðandi stjórnendur.

 

Námskeið í framhaldsdeild eru yfirleitt lögreglumönnum og embættunum að kostnaðarlausu en frá því eru þó þær undantekningar að nemar í stjórnunarnámi, sem haldið er í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands, greiða þátttökugjald og á einstaka námskeið, þar sem fengnir eru til liðs við skólann leiðbeinendur frá öðrum skipulagsheildum en lögreglunni eða frá útlöndum, er krafist þátttökugjalds en það er þá tilkynnt í hvert sinn.

 

Framhaldsdeild skólans er til húsa á 3. hæð að Krókhálsi 5A og einnig hefur hún aðstöðu á 2. hæð byggingarinnar þar sem er kennslusalur og vinnuherbergi sem nýtast vel við úrlausnir hópverkefna.

 

Lögregluskólinn birtir námsvísi í nóvember ár hvert fyrir komandi ár og skráningar á námskeið fara fram með milligöngu stjórnenda viðkomandi lögregluembættis. Tekið er á móti skráningum í tölvupóstfangið framhaldsdeild.lsr@tmd.is.


Senda grein

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
um 80% þeirra sem eru sviptir eru ökuréttindum vegna umferðarpunkta eru karlmenn, yngri en 20 ára ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur