Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
 Innbrot og þjófnaðir  
 Ofbeldi  
 Fíkniefni og aðrir vímugjafar  
   Foreldrarölt  
   Talaðu við barnið þitt  
   Um kannabisefni  
   Upplýsingar og aðstoð  
   Vímuefnaneysla ungmenna  
   Fíkniefnafræðsla  
 Netið  
 Kynferðisbrot  
 Ýmis ákvæði laga um börn  
 Fræðsluefni  
 Greinar  
 Vefir um forvarnir  
 Ýmislegt  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Upplýsingar og aðstoð   

Hvert er hægt að leita eftir upplýsingum eða aðstoð?


Oft vakna upp spurningar hjá foreldrum, jafnt sem öðrum, um vímuefni, ofbeldi, einelti eða annað sem tengist umhverfi barna og ungmenna. Ekki er alltaf ljóst hvert hægt er að leita eftir svörum við spurningum eða jafnvel aðstoð. Hjá lögreglunni er til staðar þekking og reynsla sem oft getur komið að góðum notum en einnig er hægt að leita til margra aðila sem hafa sérþekkingu á þessu sviði. Hér eru upplýsingar um nokkra aðila hjá lögreglu og annarsstaðar sem veitt geta nánari upplýsingar eða aðstoð.

Unglingaráðgjafar Félagsþjónustunnar í Reykjavík starfa á öllum borgarhlutaskrifstofum þeirra. Þar er hægt að fá margskonar upplýsingar um málefni barna og ungmenna t.a.m. hvað varðar stuðning og þau úrræði sem eru í boði. Hjá borgarhlutaskrifstofunum er hægt að panta viðtalstíma hjá ráðgjöfum eða fá upplýsingar símleiðis hjá vakthafandi ráðgjafa. Borgarhlutaskrifstofurnar fyrir Grafarvog er í Fjölskyldumiðstöðinni Miðgarði s. 545 4500, Grafarholt, Árbær og Breiðholt sækja þjónustu í Álfabakka 12 s. 535 3300, Austurborgin sækir þjónustu á Suðurlandsbraut 32 s. 535 3200, Miðborgin sækir þjónusta á Skúlagötu 21 s. 535 3100 og fyrir Vesturbæinga þá er það Vesturgarður sem er fjölskyldu- og skólaþjónusta við Hjarðarhaga 45-47 s. 535 6100. Frekari upplýsingar er að finna á www.felagsthjonustan.is.

Barnavernd Reykjavíkur tekur við tilkynningum er varðar barnaverndarmál í síma 535 2600 á dagvinnutíma. Utan dagvinnutíma (frá kl. 16:15 til 8:20 að morgni) og um helgar (frá kl. 16:15 á föstudögum til kl. 8:20 á mánudagsmorgnum) og á helgidögum sinnir bakvakt bráðatilvikum vegna barnaverndarrmála í síma 892 7821.

Félagsþjónustan í Reykjavík rekur Fjölskylduþjónustuna Lausn að Sólvallagötu 10. Þar er boðið upp á lausnamiðaða fjölskyldumeðferð og ráðgjafaþjónustu. Er hún ætluð Reykvíkingum og er notendum að kostnaðarlausu. Hægt er að panta viðtal í síma 552 5881 á mánudögum og föstudögum kl. 11 til 12, einnig er hægt að senda tölvupóst í netfangið lausn@fel.rvk.is. Frekari upplýsingar um Fjölskylduþjónustunna er að finna á www.felagsthjonustan.is


Á Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg 47 er rekin Fjölskyldumiðstöð vegna barna í vanda. Þar er foreldrum veittur stuðningur og ráðgjöf vegna vímuefnaneyslu barna. Miðstöðin er opin mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá 14:00-18:00. Hægt er að ná sambandi við ráðgjafa í síma 511 1599 en einnig fást nánari upplýsingar á heimasíðu miðstöðvarinnar.

Heimili og skóli eru landssamtök foreldra barna og unglinga í grunn- og framhaldsskólum. Markmið samtakanna er að vinna að bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum barna og unglinga og bættum hag fjölskyldna. Á skrifstofu samtakanna að Laugavegi 7, sími 562 7475, eru veittar upplýsingar og ráðgjöf á sviði skóla, uppeldis- og menntamála. Hægt er að senda póst til samtakanna eða kynna sér þau nánar á heimasíðu þeirra


Ø Börnum og ungmennum stendur til boða áfengis- og fíkniefnameðferð hjá SÁÁ. Vikulega eru haldnir stuðningsfundir fyrir ungt fólk á aldrinum 14-22 ára og er móttaka og skráning á göngudeildinni í Reykjavík á mánudögum kl 17:20. Nánari upplýsingar er einnig hægt að fá í síma 530 7600 eða á
heimasíðu samtakanna.

Ø Vímulaus æska veitir börnum og foreldrum ýmiskonar ráðgjöf og aðstoð. Foreldrar og fagfólk svara foreldrasímanum 581 1799 allan sólarhringinn en einnig er hægt að fá ráðgjöf frá foreldrum í símum 511 6160 og 511 6161 alla virka daga frá kl. 9:00-16:00. Heimasíða Foreldrahússins er: www.foreldrahus.is eða www.vimulausaeska.is.

Rauðakrosshúsið er athvarf fyrir börn 18 ára og yngri. Athvarfið er opið allan sólarhringinn á Tjarnargötu 35, síminn er 562 2260. Trúnaðarsíminn er 800-5151 og er opinn frá 12 á hádegi til 12 á miðnætti.

Götusmiðjan. Meðferðarheimilið Árvellir. Fyrir (14)16-20 ára. Innlagnir fara í gegnum Félagsþjónustuna/Barnavernd. Upplýsingar er hægt að fá í síma 566 6100.


Senda grein

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
hámarksfjöldi umferðarpunkta hjá einstaklingi með ökuskírteini sem gildir til 70 ára aldurs er 12 umferðarpunktar ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur