| 7. júlí 2010 |
Nýr verkefnastjóri fyrir þjónustumiðstöð vegna eldgoss |
Þann 1. júlí hóf Sigrún Árnadóttir störf hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjórans sem verkefnastjóri fyrir þjónustumiðstöð vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Sigrún tekur við af Vagni Kristjánssyni og Guðmundi Inga Ingasyni, sem voru verkefnastjórar þjónustumiðstöðvanna á Heimalandi og í Vík. Vagni og Guðmundi eru færðar þakkir fyrir þeirra störf við rekstur þjónustumiðstöðvanna. Fyrst um sinn mun Sigrún starfa á skrifstofu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð en jafnframt mun hún starfa að hluta ýmist á Kirkjubæjarklaustri, í Vík, Heimalandi eða á Hvolsvelli. Meginverkefni hennar er að sinna eftirmálum eldgossins í Eyjafjallajökli sem snúa að sveitarfélögum, íbúum og uppbyggingarstarfi. Sigrún Árnadóttir starfaði um langt árabil hjá Rauða krossi Íslands, lengst af sem framkvæmdastjóri. Síðustu ár hefur hún verið í framhaldsnámi og rekið eigið ráðgjafarfyrirtæki. Sigrún er boðin velkomin til starfa. Hægt er að hafa samband við Sigrúnu í síma 861 7683 eða í gegnum netfangið sigruna@rls.is.
|
Senda frétt |
| Til baka |