Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
 Fréttir  
 Tilkynningar  
 Lausar stöður  
 Yfirstjórn  
 Almannavarnadeild  
 Um embættið  
 Fyrirspurnir  
 Schengen  
 Ársskýrslur RLS  
 Tölfræði / rannsóknir  
 Kynningarrit RLS  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
Býrð þú við ofbeldi?  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Fréttir   
11.3.2004

Samningur lögreglu og björgunarsveita

Föstudaginn 5.mars sl. var undirritaður samningur milli ríkislögreglustjórans og lögregluembættanna í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði annars vegar og svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu hins vegar. Undirskriftin fór fram í höfuðstöðvum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Skógarhlíð 14.

 

Samningurinn mun fastmóta áralangt samstarf lögreglu og björgunarsveita við leit og björgun að týndu fólki og viðbrögð við slysum. Hann skýrir og skilgreinir boðunarferli björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu, hvenær þær eru boðaðar út og hvaða verkefnum þær eiga að sinna. Þá tekur samningur á verkaskiptingu milli aðila. Samkvæmt lögum bera lögreglustjórar ábyrgð á leit og björgun á landi, hver í sínu umdæmi og ber þeim að samhæfa störf þeirra sem koma að leitar- og björgunaraðgerðum. Lögregla kallar björgunarsveitir til aðstoðar ef þörf krefur. Þá eru björgunarsveitir samkvæmt lögunum hjálparlið lögreglu við leit og björgun á landi og við sérstök gæslustörf. Undir það falla verkefni svo sem leit að týndu fólki, hjálpar- og björgunarstörf vegna óveðurs og ófærðar og björgunarstörf vegna slysa fjarri alfaraleið. Við störf sem hjálparlið lögreglu starfa björgunarsveitir á ábyrgð hennar. Svæðisstjórn björgunarsveita fer með tæknilega stjórn björgunarsveita við aðgerðir.

 

Þetta er fyrsti samningur sem gerður er milli lögreglu og björgunarsveita sem er byggður á grundvelli 2. mgr. 3. gr. laga um björgunarsveitir og björgunarsveitarmenn nr. 43/2003 sbr. og 3. mgr. 6. gr. lögreglulaga nr 90/1996 um samstarf lögreglu og björgunarsveita sem lýtur yfirstjórn lögreglustjóra í hverju umdæmi og reglugerðar nr. 289/2003.

 

Frá undirritun samningsins


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
um 80% þeirra sem eru sviptir eru ökuréttindum vegna umferðarpunkta eru karlmenn, yngri en 20 ára ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur