100 verkefni af ýmsum toga eru færð í dagbók þessa vikuna. Mikið ber á afskiptum vegna umferðarlagabrota s.s. 16 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur.
Nokkur umferðaróhöpp eru færð í dagbók, þar af eitt móthjólaslys er varð á Smiðjuvöllum þ. 24. 08, en þá varð árekstur með móthjóli og lyftar. Meiðsl ökumanns mótorhjólsins voru minniháttar.
Sunnudaginn 26. ágúst bast tilkynning um mikið ölvaðan ökumann á leið frá Reykjavík. Lögreglumaður á frívakt tilkynnti um manninn og reyndi að stöðva för hans á Kjalarnesi, en tókst ekki. Ökumaðurinn rásaði á veginum og olli stór hættu. Lögreglumenn stöðvuðu ferðir hans í Hvalfjarðargöngunum. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð og virtist ofurölvi.
Á vettvangi stöðvaðist umferð á meðan á lögregluaðgerðinni stóð. Aðvífandi ökutæki var ekið aftan á bifreið sem stöðvuð hafði verið á nálægt vettvangi. Umferð um Hvalfarargöngin stöðvðist vegna árekstursins, en lögreglumenn af höfuðborgarsvæðinu komu á vettvang og rannsaka málið. |