| Síðasta vika var tiltölulega róleg á flestum sviðum Ellefu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar öll slysalaus sem betur fer en talsvert eignatjón varð í sumum. Þannig varð harður árekstur á miðvikudaginn á Skógarlundi við Brálund þar sem önnur bifreiðin varð óökufær og hin mikið skemmd. Þá varð þriggja bíla árekstur á Þórunnarstræti seinnipart sama dag er ekið var aftan á bifreið sem stöðvað hafði við innkeyrslu og þeir sem á eftir komu tókst ekki að stöðva í tæka tíð.
Aðfaranótt föstudagsins var tilkynnt um innbrot í Veganesti. Vegfarandi hafði orðið var við grunsamlegar mannaferðir og gat gefið greinargóða lýsingu á viðkomandi. Eftir nokkra leit fannst maður sem svarið til lýsingarinnar þar sem hann lá inn í garði leikskóla í næsta nágrenni og í kring um hann þýfi úr versluninni og nauðsynleg áhöld til innbrots. Telst málið upplýst.
Fimm ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur og tveir grunaðir um ölvun við akstur.
Helgin var með hefðbundnum hætti og skemmtanalífið með betra móti. |