Auglýsing nr. 13/2010
Við embætti lögreglustjórans á Snæfellsnesi eru lausar til umsóknar þrjár stöður lögreglumanna.
Einni stöðunni er sinnt frá lögregluvarðstofunni í Stykkishólmi en tveimur frá lögregluvarðstofunni í Snæfellsbæ. Æskilegt er að annar þeirra hafi einhverja reynslu af stjórnun vakta og rannsókn sakamála. Æskilegt er að búseta lögreglumannanna sé á sama svæði og er greiðsla fyrir bakvaktir við það miðuð.
Stöðurnar veitast frá og með 1. september 2010. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins.
Umsóknum skal skilað til lögreglustjórans á Snæfellsnesi, Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2010. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Ólafur Guðmundsson yfirlögregluþjónn í síma 430 4142.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, nr. 464/1996, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga, nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Ráðningakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna. Starfshlutfall er 100% og störfin vaktavinna. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Ríkislögreglustjóri skipar í stöðurnar. Öllum umsækjendum sem lokið hafa prófi frá Lögregluskóla ríkisins verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir liðnum eyðublöð.
Reykjavík, 10. júní 2010
Ríkislögreglustjórinn |