Auglýsing nr. 15/2010
Ríkislögreglustjóri óskar eftir að ráða starfsmann í tölvudeild embættisins til þess að annast og hafa umsjón með sérhæfðum tölvukerfum. Starfið veitist frá og með 1. september n.k., eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni
· Umsjón með gagnagrunnum, afritunartöku, vmware klasa og sérhæfðum kerfum Schengen samstarfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólamenntun á sviði tölvunar-, kerfis-, tækni- eða verkfræði.
· Reynsla af rekstri tölvukerfa er nauðsynleg
· Haldgóð reynsla af rekstri stýrikerfa á borð við AIX er nauðsynleg
· Haldgóð reynsla af rekstri stýrikerfa á borð Linux og Windows er æskileg.
· Haldgóð reynsla af rekstri kerfa eins og TSM, DB2, oracle, vmware, MQ Series og IBM WAS er æskileg
· Góð þekking á rekstri IBM Storage og Blade þjóna er æskileg
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Samskiptahæfni
· Metnaður og öguð vinnubrögð
Boðið er uppá mjög gott starfsumhverfi, fjölbreytt starf og áhugaverð verkefni.
Nánari upplýsingar veitir
Jónas Ingi Pétursson í síma 8604554 eða á tölvupósti á netfangið: jonas.petursson@rls.is
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí nk. Ráðningakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, nr. 464/1996, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga, nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Umsóknum með upplýsingum um menntun, fyrri störf og annað sem skipt getur máli, skal skilað til embættis ríkislögreglustjóra, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.
Reykjavík, 2. júlí 2010
Ríkislögreglustjórinn
|