20 Apríl 2018 18:44

Bráðabirgðaniðurstaða rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á eldsupptökum í iðnaðarhúsnæði við Miðhraun í Garðabæ í byrjun mánaðarins liggur fyrir. Samkvæmt henni voru eldsupptök í rafmagnstenglum neðan við rafmagnstöflu á brunavegg í miðrými húsnæðis Icewear.