11 Apríl 2016 11:19

Hestamaður slasaðist þegar hann  féll af hesti sínum við Mánagrund í Keflavík sl. föstudag. Lögregla og sjúkrabifreið fóru á staðinn og var knapinn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ekki er vitað um ástæður óhappsins en maðurinn reyndist hafa hlotið meiðsl á ökkla.