24 Mars 2015 14:43

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði á tveimur stöðum í Hafnarfirði í síðustu viku. Á öðrum þeirra var lagt hald á rúmlega 200 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar og 2 kg af marijúana. Karl á sjötugsaldri, sem var handtekinn á vettvangi, játaði aðild sína að málinu og telst það upplýst. Á hinum staðnum var lagt hald á 15 kannabisplöntur, en þar var ræktunin einstaklega vel tækjum búin og fullkomin eftir því. Karl á fimmtugsaldri játaði aðild sína að seinna málinu, og telst það sömuleiðis upplýst.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu, dreifingu og framleiðslu fíkniefna, en lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.