26 Febrúar 2015 14:26

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur á undanförnum vikum handtekið á annan tug manna og lagt hald á talsvert af fíkniefnum í aðgerðum sem beinast gegn sölu fíkniefna á samfélagsmiðlum. Við húsleitir í umdæminu tók lögreglan í sína vörslu kókaín, LSD og um 200 gr. af amfetamíni, auk kannabisefna sem var að finna á allmörgum stöðum. Enn fremur var lagt hald á peninga, sem taldir eru vera tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Í hópi hinna handteknu eru aðallega karlar á þrítugsaldri, en ein kona var handtekin í aðgerðunum. Flest málanna, sem að framan voru nefnd, teljast upplýst. Að mati lögreglu er umfang fíkniefnasölu á samfélagsmiðlum verulegt, en aðgerðunum verður framhaldið. Þess má geta að allnokkrum fésbókarsíðum, sem hafa boðið fíkniefni til sölu, hefur verið lokað.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglu.