27 Janúar 2017 12:04

Í tveimur húsleitum sem lögreglan á Suðurnesjum gerði í vikunni, að fengnum dómsúrskurði, fundust amfetamín og kannabisefni á báðum stöðum. Á þriðja staðnum haldlagði lögregla svo lítilræði af kannabisefnum.

Þá gekk borgari, sem var að viðra hund sinn, fram á umtalsvert magn af kannabisefnum. Efnin voru í  tveimur stórum zip lock pokum. Maðurinn gerði lögreglu viðvart um fundinn.

Loks kom annar borgari á lögreglustöð með lítinn sýnapoka með meintu kannabisefnum sem hann hafði fundið utan dyra.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-500.  Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.