9 September 2015 18:31

Við komu ferjunnar Norrönu til Seyðisfjarðar þann 8. þ.m. var lagt hald á verulegt magn fíkniefna.   Málið var unnið í samstarfi lögreglustjórans á Austurlandi, embættis Tollstjóra, lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu og færeyskra tollayfirvalda.

Erlent par á fimmtugsaldri var handtekið  í þágu rannsóknar málsins og hafa þau verið úrskurðuð í 14 daga gæsluvarðhald.

Rannsókn málsins er á frumstigi og frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu.

 

 Lögreglustjórinn á Austurlandi

 Inger L. Jónsdóttir, lögreglustjóri