7 Apríl 2017 18:04

Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur í dag virkjað verklag vegna hryðjuverkaárása í nágrannalöndum.  Þetta var gert vegna árásar í miðborg Stokkhólms fyrr í dag.

 

Sú ákvörðun var tekin á fundi ríkislögreglustjóra með yfirmönnum löggæslu- og öryggissviðs embættisins að hækka ekki viðbúnaðarstig lögreglu að svo stöddu.

 

Áfram verður fylgst með framgangi mála í Svíþjóð en miðað við fyrstu upplýsingar er talið að árásin í Stokkhólmi sé staðbundinn atburður.

 

Því var beint til lögreglunnar á Suðurnesjum að vera sérstaklega vakandi vegna flugs frá Svíþjóð. Það skal tekið fram að ekki eru fyrirliggjandi upplýsingar þess efnis að á leið til landsins séu grunaðir aðilar. Hér er um öryggisráðstafanir að ræða.  

Ákveðið var að fjölga sérsveitarmönnum á vakt yfir helgina.

Því var beint til lögregluliða að vera á varðbergi gagnvart grunsamlegum einstaklingum og óvenjulegum atburðum sem gætu tengst áformum um stórfellda ofbeldisglæpi.

Greiningardeild og alþjóðadeild ríkislögreglustjóra fylgjast með samskiptakerfum við erlend lögreglulið og öryggisstofnanir og fjölmiðlum og munu meta stöðuna eftir því sem upplýsingar berast.