23 Febrúar 2018 15:02

Í slysinu létust hjón á fertugsaldri ásamt 5 ára dóttur þeirra, þegar bifreið sem þau voru í lenti í sjónum við höfnina á Árskógsandi. Rannsókn málsins er á lokastigi.

Rannsókn málsins hefur ekki leitt í ljós afgerandi niðurstöðu um orsakir slyssins. Svo virðist sem bifreiðinni hafi verið ekið á jöfnum hraða eftir bryggjunni og hafi ekki verið hemlað áður en hún lenti út af henni og í sjóinn.  Þessi ályktun er dregin af vitnaleiðslum og rannsókn á vettvangi. Bifreiðin hefur verið rannsökuð eftir slysið og ekkert kom í ljós er benti til bilunar í bifreiðinni.  Þá er heldur ekki talið að aðstæður á vettvangi þ.e.a.s. akstursaðstæður og veður hafi verið ástæða slyssins eða samverkandi þáttur. Ekki er vitað til þess að ökumaður hafi orðið fyrir truflun og engar vísbendingar komið fram sem benda til þess að ökumaður hafi ekið fram af bryggjunni með ásetningi. Ekki er útilokað að ökumaður hafi misst meðvitund áður en bifreiðin fór fram af bryggjunni án þess þó að skýrar sannanir séu fyrir því.