19 Júlí 2017 15:41

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Bergstaðastræti í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bergstaðastræti í norðurátt, við Bjargarstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Bergstaðastræti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.