14 Mars 2017 15:25

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir febrúarmánuð 2017 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 562 tilkynningar um hegningarlagabrot í febrúar, sem er töluverð fækkun miðað við síðastliðna mánuði. Tilkynningum um flest brot fækkaði í febrúar samanborið við meðalfjölda brota síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan. Hlutfallslega fækkaði tilkynningum um kynferðisbrot mest eða um 54 prósent. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 241 tilkynning um þjófnaði í febrúar. Ekki hafa borist jafn fáar tilkynningar um þjófnaði í einum mánuði frá því að samræmdar skráningar á brotum hófust hjá lögreglu árið 1999. Aðeins má greina fjölgun í einum brotaflokki miðað við meðaltal síðustu 12 mánaða, ofbeldi gegn lögreglumönnum, sem fjölgaði um 67 prósent.