3 Janúar 2017 09:54

Unglingspiltur slasaðist á hendi á nýárskvöld þegar heimagerður flugeldur sprakk í hendi hans.  Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og reyndist hann hafa hlotið annars stigs bruna. Fleiri heimagerðar sprengjur reyndust vera til staðar og komu aðstandendur piltsins þeim á lögreglustöðina í Keflavík. Landhelgisgæslan sá svo um að eyða þeim. Barnaverndarnefnd var tilkynnt um málið vegna ungs aldurs piltsins.