3 Október 2016 16:26

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála sem komu inn á borð lögreglu. Skemmtana hald helgarinnar fór ágætlega fram en eitthvað var þó um að lögreglan þurfti að hafa afskipti af fólki sökum ölvunarástands þess.

Lögreglan hafði í nógu að snúast í liðinni viku vegna sama aðila sem ítrekað hefur verið staðinn af þjófnuðum, húsbrotum, nytjastuldi vélknúinna ökutækja og eignaspjalla, en alls eru þarna um 6 tilvik að ræða. Stolið var m.a. áfengi, þurrbúningi og létt bifhjólum.  Er þarna um að ræða ungan dreng sem ítrekað hefur verið staðin að afbrotum á undanförnum mánuðum.  Vill lögreglan af því tilefni hvetja fólk til að skilja verðmæti ekki eftir á glámbekk, læsa húsum sínum og bílum þegar þeir eru yfirgefnir.

Þann 30. september sl. var lögreglu tilkynnt um skemmdir á hópferðarbifreið en bifreiðinni hafði verið ekið á göngubrú Herjólfs með þeim afleiðingum að skemmdir urðu á kælibúnaði á þaki bifreiðarinnar auk þess sem þakgluggi brotnaði. Engar skemmdir urðu á göngubrúnni né urðu slys á fólki.

Alls liggja fyrir 6 kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna en m.a. er um að ræða grun um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, ólöglegar lagningar bifreiða, akstur án réttinda og akstur gegn einstefnu.