19 Febrúar 2018 12:02

30 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í síðustu viku. Í 5 þeirra urðu slys á fólki en þó ekki alvarleg.   Ökumaður sem hugðist, þann 13. febrúar s.l., aka fram úr annarri bifreið, á Suðurlandsvegi skammt vestan Kúðafljóts, rak bíl sinn í horn bifreiðarinnar sem hann hugðist aka fram úr og lenti út af vegi og valt. Farþegi í bíl hans kenndi eymsla í öxl en aðrir aðilar máls ómeiddir.   Sama dag valt bifreið á Suðurlandsvegi við Mókeldu.   Ökumaður og farþegi hlutu minniháttar meiðsl af veltunni.   Bifreiðin reyndist ótryggð og eins var um 3 aðrar sem fundust í eftirlitsferðum um umdæmið í vikunni.   Skráningarnúmer þessara bifreiða voru fjarlægð.

Veður á stóran hluta í verkefnum vikunnar og hafa lögregla og björgunarsveitir, ásamt vegagerð, þurft að sinna mörgum verkefnum sem komið hafa upp þar sem fólk á í vandræðum vegna færðar.     Aðgerðastjórn hefur verið virkjuð í björgunarmiðstöðinni við Árveg og einnig í húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu og í húsnæði Björgunarfélagsins á Höfn þegar þess hefur gerst þörf.   Í aðgerðastjórn koma saman, auk fulltrúa svæðisstjórnar björgunarsveita og lögreglu, fulltrúi Brunavarna Árnessýslu vegna vinnu á þeirra starfssvæði, fulltrúi vegagerðar og fulltrúi sjúkraflutninga HSU til úrvinnslu þeirra verkefna sem boðið er upp á hverju sinni.   Verklag þetta er skilvirkt og tryggir stystu mögulegu boðleiðir milli eininga og þar með skjótustu þjónustuna við þann sem þarf á aðstoðinni að halda. Hér vestanmegin í umdæminu var það snjókoma og skafrenningur sem skapaði flest verkefnin en eystra fengust menn við fjúkandi þakplötur og bíla af vegi í hálku og roki.

Ökumaður fólksbifreiðar var sviptur ökurétti, á vettvangi brots, þann 17. febrúar s.l. þegar hann ók bifreið sinni með 155 km/klst hraða á þjóðvegi 1 við Hóla í Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst.   Ökumaðurinn reyndist erlendur ferðamaður frá Hong Kong og greiddi sá sektina á staðnum og annar tók við akstrinum.   Krap var milli hjólfara á veginum þar sem þetta var og hættan af þessu aksturslagi augljós.   16 aðrir ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í umdæminu á tímabilinu.

Einn ökumaður var stöðvaður grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna þann 14. febrúar s.l. á Selfossi.