12 September 2017 10:09

37 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku. Tveir þeirra reyndust á yfir 140 km/klst hraða, báðir í uppsveitum Árnessýslu, annar á 141 en hinn á 143 km/klst hraða. 5 voru á hraðabilinu frá 130 til 139 km/klst.  5 ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið undir  áhrifum áfengis á þessu tímabili.

Kona slasaðist þegar hún féll af hesti við Svínafell í Öræfum. Hún var flutt með sjúkrabifreið til Hafnar í Hornafirði en er ekki talin alvarlega slösuð. Þá brotnaði kona á fæti þegar hún féll á göngustíg við Kerið í Grímsnesi.  Önnur kona er talin brotin á hönd eftir að hafa dottið á bílastæði við Skógarfoss.  Allir þessir aðilar eru erlendir ferðamenn á ferð sinni um landið.   Karlmaður slasaðist þegar jarðvegur gaf sig undan kornvalsi þar sem verið var að valsa korn á byggakri í Árnessýslu.  Valsinn féll að dráttarvél sem ætlað var að knýja hann en maðurinn varð þar á milli og hlaut áveka á brjóstkassa við það.  Hann var fluttur með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík.  Þá slasaðist maður þegar hann ók bifreið sinni á mikilli ferð á vegrið við Ölfusárbrú og á brúnni sjálfri.  Hann kastaði sér síðan í ána en var bjargað á land af björgunarsveitarmönnum skömmu síðar.  Hann er enn á gjörgæslu Landspítala Háskólasjúkrahúss.

Ökumaður pallbíls var stöðvaður við akstur á Suðurlandsvegi við Djúpadal að kvöldi 8. september s.l. með 3 hesta á kerru sem hann dró með bifreiðinni.  Kerran var ljóslaus með öllu og við athugun kom í ljós að hún hafði síðast verið færð til skoðunar á árinu 2008.  Ökumanni var fylgt með lestina á Hvolsvöll þar sem skráningarnúmer voru tekin af kerrunni og hún þar með kyrrsett.