9 Október 2017 16:46

3 ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið ölvaðir í liðinni viku í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Einn þeirra, kona á fertugs aldri, er auk þess grunuð um að hafa verið undir áhrifum lyfja en ökuferð hennar endaði á Pylsuvagninum á Selfossi að kvöldi föstudagsins síðasta.  Ekki urðu slys á fólki.   Önnur kona, erlendur ferðamaður, var stöðvuð á Hellu og lauk máli sínu degi síðar með því að gangast undir sektargerð og sviptingu ökuréttar. Blóðsýni hennar var sett í flýtimeðferð hjá Rannsóknarstöfu Háskólans svo unnt væri að ljúka málinu áður en kærða færi af landi brott.  Þriðji aðilinn, erlendur karlmaður búsettur á Íslandi var einnig stöðvaður á Hellu sama kvöld.

26 voru kærðir fyrir að aka of hratt, 5 þeirra í nágreni Víkur, 8 í nágreni Kirkjubæjarklausturs, 7 í lágsveitum Árnessýslu og 2 í uppsveitum.  3 voru kærðir í  Rangárþingi ytra.  Sjá má tölur eins og 148 km/klst og 137 km/klst í hópi þessara 26 aðila og öllum má vera ljóst mikilvægi þess að ná böndum um slíka hegðun ökumanna í umferðinni.

3 slys voru tilkynnt til lögreglu.   Í einu tilfellinu rákust speglar bifreiða sem mættust saman og brotnaði hliðarrúða í annarri bifreiðinni.  Slysið varð á Suðurlandsvegi við Keldunúp og fengu bæði ökumaður og farþegi aðskotahluti úr speglunum í andlit og háls.

Þá slasaðist bóndi í V. skaftafellssýslu við akstur fjórhjóls á túni en hjólið valt þegar hann sveigði frá kú sem gekk í veg fyrir hann.          Meiðsl hans eru ekki talin alvarleg