30 Október 2017 12:55

40 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi í liðinni viku. Af þeim eru 36 erlendir ferðamenn.  Brotin eru flest á Suðurlandsvegi, þar af 16 í nágreini Víkur og 7 í Öræfum  en einnig á veginum um Lyngdalsheiði og á Biskupstungnabraut.

2 ökumenn voru kærðir fyrir að flytja of þungan farm, annar allt að 10% yfir leyfðri þyngd en hinn allt að 20% yfir leyfðri þyngd. Sektarflokkum þessara mála er skipt með þessum hætti þannig að lægsti flokkurinn er að 10% næst 11 til 20% og svo 21 til 30% en þeir sem fara yfir þá þyngd sæta ákæru fyrir brot sín.   Háar sektir eru við þessum brotum enda vex tjón á vegi í veldishlutfalli við þá þyngd sem ökutæki flytur.

6 eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Í einu tilvikanna voru 2 handteknir eftir að hafa ekið bifreið sinni á vegrið við veginn yfir Sámstaðamúla í Þjórsárdal og fest hana þar.Ekki urðu slys á fólki við þetta.   Þá voru 2 handteknir grunaðir um að hafa ekið bifreiðum sínum undir áhrifum fíkniefna.

Brotist var inn í sumarhús og vélaskemmu í Árborg í vikunni og þaðan stolið skotvopni og miklu af skotfærum, verkfærum, húsmunum, fatnaði og reiðtygjum.  Áætlað verðmæti þessara muna er á þriðju milljón króna.   Megnið af þýfinu er fundið og í tengslum við það voru þrir aðilar handteknir með aðstoð sérsveitar og samningateymis Ríkislögreglustjóra í gær.  Vegna þess máls er nú unnið að húsleitum á handtökustað viðkomandi og einnig á öðrum stöðum sem taldir eru tengjast meintum brotamönnum.   Grunur leikur á að aðilar þessir tengjist fleiri þjófnaðarmálum liðinna vikna.   Skýrslur verða teknar af viðkomandi, eftir því sem húsleitum vindur fram,  þegar kemur fram á daginn en ekkert þeirra var í ástandi til skýrslugjafar í gærkvöldi eða nótt.

Lögregla, björgunarsveitir og þyrla LHG  voru kallaðar til s.l. laugardag þegar rjúpnaveiðimaður missti meðvitund, vegna bráðra veikinda,  þar sem hann var við veiðar skammt norðan við Krakatinda.  Sonur mannsins var með honum og hafði samband við Neyðarlínu og hóf endurlífgunartilraunir sem áhöfn þyrlu hélt áfram þegar þeir komu á staðinn en þær reyndust árangurslausar.  Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi.