24 Október 2016 09:54

Lögregla og slökkvilið var kallað að Eyrarbraut á Stokkseyri rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi vegna elds í skúr. Liðsmenn Brunavarna Árnessýslu réðu niðurlögum eldsins fljótlega.  Eldsupptök eru ókunn og málið í rannsókn.

Aðfaranótt sunnudags var ráðist á mann fyrir utan íbúðarhús á Selfossi og hann skorinn með eggvopni þremur skurðum í höfuðið. Gert var að sárum mannsins á heilsugæslustöðinni á Selfossi.  Árásarmaðurinn var handtekinn á heimili sínu skömmu eftir að tilkynnt var um atvikið.  Hann viðurkenndi að hafa slegið manninn í höfuðið.

Karlmaður var kærður, um helgina, fyrir brot gegn nálgunarbanni. Brotið fólst í því að hann er sagður hafa sent fyrrum sambýliskonu sinni sms skilaboð.  Málið er í rannsókn.

Ungur karlmaður, á Selfossi, var staðinn að því að hafa í vörslu sinni kanbisefni. Lögreglumenn höfðu tekið hann upp í lögreglubifreiðina til að flytja hann á milli húsa en fundu þá mikinn kanabisþef leggja frá unga manninum.  Hann framvísaði um 2 grömmum af kannabis.