15 Október 2017 21:51

Þessa fimm daga eru skráð 75 mál í málaskrá Lögreglunnar á Austurlandi.

Fimm umferðaróhöpp urðu í umdæminu, óhöppin voru að mestu slysalaus en einn ökumaður sem missti stjórn á bifreið sinni í hálku á hringveginum í Langadal var fluttur af vettvangi með skjúkrabifreið.

Þá varð árekstur með skjúkrabifreið og fólksbifreið í Norðfirði. Lán var í óláni að sjúkraflutningamenn voru að koma frá sjúkrahúsinu í Neskaupstað eftir sjúkraflutning þangað, engin meiðsl urðu í því óhappi.

Í gær þann 14. október gerði mikið hvassviðri hér á fjörðunum sérstaklega í Neskaupstað. Á hafnarsvæðinu í Neskaupstað fuku gámar til í einni hviðunni og vildi ekki betur til að einn þeirra hafnaði á pallbifreið sem staðsett var á höfninni. Nokkrar skemmdir urðu á bifreiðinni.

Olíumengun varð í Stöðvarfjarðarhöfn þegar díselolía lak í höfnina. Óhappið varð þegar gleymdist að slökkva á dælu sem var notuð til að dæla olíunni á milli tanka. Töluvert magn olíu lak í sjóinn. Starfsmenn Fjarðabyggðar settu út pylsur sem sugu í sig olíuna auk þess sem starfsmenn frá Bólholti komu með dælubíl og dældu upp olíumenguðum sjó.

Eldur kviknaði í strompi eftir að kveikt hafði verið upp í lurkabrennara. Strompurinn var var farinn að hitna mikið og bólgna út af hitanum þegar að var komið. Slökkvilið Fjarðabyggðar kom á vettvang og réði niðurlögum eldsins. Grunur leikur á því að eldurinn hafi kviknað í sóti sem safnast hafði fyrir í strompinum. Einhverjar skemmdir urðu vegna hita.

Þann 12. þurfti að sækja erlendan ferðamann í Viðfjörð. Hann hafði ekið bílaleigubifreið sem hann var á fram í fjöru og fest hana þar. Ekki fór betur en svo að bifreiðina flæddi og varð ógangfær eftir. Auk þessa hafði hann ekið utanvegar og valdið gróðurskemmdum. Ökumaður var færður á lögreglustöð á Eskifirði þar sem honum var gert að greiða sekt fyrir að aka utanvegar. Auk þessa má búast við að nokkur kostnaður hafi hlotist af því að sækja bifreiðina en starfsmenn Áhaldaleigu Austurlands fóru á staðinn með tæki og tól til að sækja bifreiðina. Lögreglan naut aðstoðar Björgunarsveitarinnar Gerpis í Neskaupstað við að sækja ökumanninn.