20 Nóvember 2017 13:37

5 eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis í liðinni viku. Um er að ræða fjögur mál en í einu þeirra voru tveir aðilar handteknir eftir að hafa ekið bifreið sinni út af vegi við Þingborg í Fóa og fest hana þar.   Þeir voru báðir handteknir á vettvangi og yfirheyrðir eftir að hafa sofið úr sér vímuna.   Einn er grunaður um að hafa ekið bifreið undir áhrifum fíkniefna en akstur hans var stöðvaður við Hvolsvöll.

3 ökumenn voru stöðvaðir þar sem þeir voru að aka bifreið sviptir ökuréttindum.

7 aðilar voru kærðir fyrir að aka of hratt í umdæminu í liðinni viku. Aðstæður til aksturs hafa ekki alltaf verið góðar og 2 alvarleg umferðarslys urðu á Suðurlandsvegi í liðinni vikur,  annað við Jökulsá á Sólheimasandi þar sem tvær bifreiðar sem ekið var úr gagnstæðum áttum rákust á og hitt skammt austan aflegjarans að Dyrhólaey en þar rákust saman jepplingur og snjóruðningsbíll.  Um bæði þessi slys hefur verið fjallað í tilkynningum frá okkur.  Þriðja umferðarslysið varð rétt austan við Skál í Eldhrauni en þar  rákust saman jepplingur og sendibíll.  Meiðsl í því óhappi eru talin minniháttar.  Samtals eru skráð 21 umferðaróhöpp í umdæminu í vikunni og rekja má flest þeirra til hálku og þess að akstri er ekki hagað í samræmi við aðstæður á vegi.

Þá slasaðist ferðamaður sem hugðist renna sér fótskriðu niður eftir brúarbita við minnismerki skammt frá Skaftafelli. Ekki vildi betur til en svo að hann ökklabrotnaði og var fluttur með þyrlu af vettvangi.

Maður var handtekinn í heimahúsi á Selfossi á laugardagsmorgun grunaður um að hafa brotist inn á heimili í bænum.   Hann var færður í klefa og síðar yfirheyrður en kannaðsit hvorki við brot sín eða gat skýrst hversvegna þýfið var á handtökustað hans.

Þann 18. nóvember var farið í eftirlitsferð um uppsveitir Árnessýslu vegna rjúpnaveiði og afskipti mest höfð af mönnum sem voru að koma af veiðum á Kjalvegi. Eftirltið á Kjalvegi hófst kl 13:30 og lauk því kl 16:00. Afskipti voru höfð af 14 rjúpnaskyttum og voru haldlögð 3 skotvopn  og 3 skotvopn færð tímabundið í vörslu lögreglu. Tveir aðilar voru kærðir fyrir vopnalagabrot. Um var að ræða skyttur sem höfðu ekki tilskilin leyfi meðferðis eða vopn í láni án lánsheimildar.  Ekki var mikið um afla hjá þeim sem við ræddum við. Logn var á veiðilendum og heiðskýrt en mjög kalt eða -17c.

Þann 19. nóvember, síðasta dag rjúpnaveiðitímabilsins, var farin eftirlitsferð um Fljótshlíð og Emstrur, síðan inn á Syðra Fjallabak  að Hafrafelli fremst á Rangárvallaafrétt og svo  upp  Næfurholsveg og þaðan uppfyrir Galtalæk.  Afskipti höfð af öllum veiðimönnum sem við sáum til, alls um 15 manns í 7 hópum.  Allir með allt sitt á hreinu.  Aðeins tveir með afla, sitthvorar 5 rjúpurnar.