26 September 2016 09:03

Einsdæmi og jafnfram gleðilegt að í síðustu viku voru engin hegningarlagabrot á borðum lögreglu á Suðurlandi.

Húsleit var gerð í íbúð á Höfn um helgina. Tveir karlmenn voru handteknir.  Þeir framvísuðu  hvítu dufti sem mennirinr sögðu vera fæðubótaefni.  Einnig var lagt hald á nokkuð af sveppum.  Mennirnir voru yfirheyrðir og látnir lausir að því loknu.  Efni og sveppir verða sendir í efnarannsókn og niðurstaða úr henni mun skera úr um framhald málsins.

Kona var handtekin í Hveragerði á föstudag vegna gruns um að hún hefði í vörslum sínum fíkniefni. Í veski sem hún bar fannst  lítilræði af amfetamíni.  Konan var látin laus að lokinni yfirheyrslu.

Á þriðjudag kom upp eldur í óskráðri bifreið í sandgryfju skammt frá Ölfusréttum.  Þegar slökkvilið Brunavarna Árnessýslu kom á vettvang var bifreiðin alelda.  Bifreiðin var gömul fólksbifreið sem ekki var í umferð.  Tveir unglingar höfðu verið að keyra bifreiðina í sandgryfjunni þegar eldur kom upp í mælaborði.

Þrettán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi í vikunni en engin slys á fólki.

Í vikunni voru 49 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur, þrír fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, einn fyrir ölvunarakstur og fimm umráðamenn ökutækja fyrir að að vanrækja vátryggingarskyldu.