5 Október 2015 11:12

Alvarlegt umferðarslys varð á hringveginum við Þorgeirsstaði í Lóni um klukkan 21 á fimmtudag.  Fólksbifreið fór útaf veginum og valt með þeim afleiðingum að ökumaður, sem var í bílbelti sem og tveir farþegar, festist með efri hluta líkamans undir bifreiðinni.  Vegfararndi, sem var vitni að óhappinu, tókst að mjaka bifreiðinni til og losa um ökumanninn.  Lögreglumenn á Höfn fór ásamt hjálparliði á vettvang ásamt hjálparliði.  Ökumaður og báðir farþegarnir voru fluttir með sjúkraflugi á Slysadeild Landspítla þar sem gert var að sárum þeirra.  Ökumaður reyndist viðbeinsbrotinn og með ýmsa aðra áverka.  Farþegarnir voru minna slasaðir.  Ökumaðurinn mun hafa misst stjórn á bifreið sinni eftir að hafa lokið við að aka framúr vöruflutningabifreið með eftirvagni.  Lögreglumenn á Höfn eru með málið í rannsókn.

Vinnuslys varð í Grímsnesi á fimmtudag þegar maður féll af vörubílspalli.  Verið var að draga inn rafmagnsvír á kefli sem var á vörubílspallinum.  Vírinn festist og þegar um hann losnaði slóst hann í manninn sem féll af pallinum um tvo metra.  Eftir fallið átti maðurinn erfitt um hreyfingu og var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæsluna á Selfoss.  Ekki er vitað á þessari stundu um meiðsli mannsins.  Starfsmaður Vinnueftirlitsins kom á vettvang til rannsóknar.

Aðfaranótt laugardags var brotist inn í mælingabát Samgöngustofu sem um þessar mundir er í Landeyjahöfn.  Báturinn var nýkominn á staðinn og hafði ekki verið sjósettur heldur var á kerru á bryggunni.  Lögreglumenn á Hvolsvelli í samvinnu við lögreglu í Vestmannaeyjum hafa upplýst málið.  Í ljós kom að tveir einstaklingar sem höfðu farið í bílaleigubíl með Herjólfi til Eyja og til baka á laugardeginum stóðu að innbrotinu.  Tvímenningarnir voru handteknir við Hvolsvöll á laugardag.  Í bifreið þeirra fannst þýfi úr bátnum sem voru verðmæt mælitæki, flotgalli og ýmiss konar verkfæri.  Þeir viðurkenndu þjófnaðinn og voru látnir lausir að lokinni yfirheyrslu.

Eldur kom upp í dráttarvél á Þykkvabæjarvegi síðastliðinn miðvikudag.  Slökkvilið var kallað á staðinn en búið var að slökkva eldinn þegar það kom.  Eldsupptök voru við startara vélarinnar.  Óverulegt tjón hlaust af eldinum.